well well Stínan búin að yfirgefa landið tímabundið þannig að best að næsti fari að standa sig! Veit samt eiginlea ekki alveg akkuru við ættum að vera að gera þetta í siithvoru horninu því..hmmm.. its pretty much the same. ég er sem sagt enn húsgagn á Háteigsvegi og er bara ótrúlega sátt við það :)
Heyriði á miðvikudaginn gerast hlutirnir og ég get ekki beðið, ó mæ er að deyja úr spenningi hérna megin!!! já já aftur komin tími á get 2gether með kjúlla, gulum baunum, Abby, Dr. Weaver, Carter og öllum hinum skemmtilegu sætu læknunum í Bráðavaktinni!!! loksins loksins, er orðin nokkuð spennt að fá að vita hvort Carter sé fallinn, hvort Dr.hroki sé búin að missa fleiri útlimi, hvort Dr. Green muni ganga aftur og og og þetta er bara familí.
Endilega tékkið á síðunni hennar Stínu, hún er of course bara fyndin og skemmtileg!!! ;) En annars erum við hér á klakanum að bíða eftir þér Dagný, hlakki hlakk nú eru bara...what.. 3, ÞRÍR dagar til stefnu þangað til Bumbubúinn sýnir sig (eða hmmm vonum það allavegna, við getum eiginlega ekki beðið lengur eftir þér litli kútur) en so long flaggstång med nageltrång/ Kveðjur Millsan
|
posted by Kristin @
10:56 e.h.
|
27.9.04  |
Hellú darlings! testing testing... mar er bara komin úr blogg-gír, kann ekki á þetta lengur. Best að fara að rifja upp gamla takta...gamla góða takta. Það var nú ekki leiðinlegt ;) að sjálfsögðu mætir mín á saumó kvöldið beljurnar ykkar, en þar sem ég er búin að sauma á krakkana mina, búin að hekla jólagjafirnar og prjóna á frænkurnar þá verður það eina sem ég verð með um hönd er Maxarinn góði og lúka af nammi. Við Stínan vorum audda að vísu búnar að semja um að síðasti í sukki væri á sunnudaginn síðasta þannig að ég kem bara með gulrætur og rófur plús Maxara (no sugar). Hehehhe hélduði það virkilega... ég klúðraði þessu strax í gær, dó, sá so obboslega girnilegt Kit Kat í bleika svíninu og ó mæ stóðst það ekki!!!! Kristjana Milla! well well er allavegna búin að játa syndir mínar þessa vikuna....en í næstu viku þá (hehehe). heyrðu er víst að eyða skattapeningum ríkisborgar Íslands með því að sitja hér og bulla í ykkur kæru vinir. verð að fara að gera eikkað (þegar ég er búin að redda stínu frá andlegu áfalli þar sem starsky og hutch kvöldið ruglaðist). skyldna kallar, heyri í ykkur sún. Haugur af ást frá mér, sjáumst í sukkinu á morgun Kveðja Milla pilla
|
posted by Kristin @
1:53 e.h.
|
22.9.04  |
Hellúúú..
stína hérna.. heyriði.. ma og pa eru svo bara alls ekkert að koma í borg tækifæranna.. pabbi náði sér í einhverja flensudruslu og treystir sér ekki... En well.. koma tímar koma ráð..
? um að halda þennan saumaklúbb eða .. ég er orðin spennt... hvað segið þið? skonja.. ertu að pakka þá eða leika við gústa eða eitthvað..? nei bara segi sonna.. annars er ég líka laus á mán.. bara segið til... til.. nei hmmm.. slæmt djúk
Hlakka til að melda mig inn næst og kannski heyra eitthvað fídbakk..
Stína segir yfir og út...
|
posted by Kristin @
10:14 f.h.
|
 |
Ég neyðist til að vera boðberi slæmra frétta, saumaklúbburinn verður að frestast að óviðráðanlegum orsökum. Stofnendur Stínunnar eru væntanlegir í bæinn og kýs hún að eiga frekar kósý stund með þeim en að sinna heklinu. En þetta skilst nú allt saman og er klúbbnum bara frestað til mánudagsins 27. sept og er þá verið að tala um sama tíma,svona átta.
Veriði bless, ekkert stress, hress
Bess
|
posted by Kristin @
9:20 f.h.
|
 |
Ég verð strax vör við rífandi áhuga á saumaklúbbnum.....Ég myndi glöð hýsa fyrsta klúbbinn, ég sting uppá fimmtudeginum næstkomandi sem myndi leggjast út sem 23. september. Eigum við segja uppúr áttaleytinu?
Hamrahlíðardrottningin
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
20.9.04  |
Mí mí mí... ég vil ég vil.. vera með í saumaklúbbi.. má ég það.??... ég þarf nebbla að taka rassíu í heklinu... nei ég er ekki að hekla rass-síu.. taka rassíu (= hekla hratt á stuttum tíma)
Er fyrsti í saumó heima hjá þér bergþóra?? hvenær...??? ég er oftast laust sko..
fleiri melda sig inn!!!
stínan...
|
posted by Kristin @
2:28 e.h.
|
 |
Halló halló
Nei, viti menn, þetta er ekki Stínan sem skrifar heldur gamall draugur sem ekki hefur gripið í penna lengi. Kannski ég segi ykkur lífshlaup mitt undanfarnar vikur eða daga, bara svona ykkur til skemmtunar og mér til upprifjunar.
Ég fékk ansi slæmt tilfelli af heimþrá á dögunum, ég bara varð að fá að anda að mér norðlensku lofti ekki seinna en strax. Ég stökk þá upp í flugvél, eða fullé, eins og svoleiðis tæki útlegst á Arndísku. En ástæðan fyrir þessari miklu heimþrá var einmitt sú að ég hef ekki séð litlu Guðdótturina í háa herrans tíð. En skottan sú er nú ekki svo lítil lengur, farin að hlaupa um allt, hoppa jafnfætis og fara í kollhnís eftir pöntunum og tala stanslaust. Að vísu skilja ekki margir það sem hún segir en hún er virkilega að reyna.
Í fjölskylduna var einnig að bætast nýr meðlimur. Heitir hann Brandur og er köttur. Jú, mikið rétt, þeir sem þekkja mig eitthvað kannski vita að að ég er ekki mikið gefin fyrir dýr og sé í lagi ekki ketti. En þetta dýr er nú meira djöfuls rassgatið, mig bara langar í kött. Steini var semsagt að fá sér kött, þeir feðgar fengu að vísu ansi slæmt ofnæmi fyrir honum í fyrstu, voru síhnerrandi með sokkin augu og fengu svona vessaútbrot ef hann klóraði þá en þeir hörkuðu af sér, komust yfir það og nú er kötturinn hvers manns hugljómi.
Annað markvert hefur svosem ekki rekið á mínar fjörur, ég er að vísu dottin á bólakaf í hannyrðir ýmiskonar, með þrennt í gangi núna svo ég auglýsi hér með eftir saumaklúbbi, þeir sem hafa áhuga vinsamlegast látið í sér heyra. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér hannyrðir, einhver verður jú að taka að sér slúðrið og baksturinn.
Þangað til þið látið heyra frá ykkur bið ég ykkur vel að lifa, Bergþóran
|
posted by Kristin @
2:12 e.h.
|
 |
hæ hæ
hvað segir fólkið?? ég er bara hress.. og nokkuð endurnærð eftir ágætis helgi... Á föstudaginn fékk ég góða gesti í heimsókn.. Ólöfu vinkonu mína og Thibaut ektamann hennar.. þau komu á föstudagskvöld og þá voru opnaðir nokkrir öllarar... Dísa skvísa og Anna Lú.. komu svo líka og rifjaðar voru upp góðu stundirnar í Glerárskóla þegar við hjéngum allar fyrir utan Sunnuhlíðina í votviðri sem góðviðri.. Gúd tæms..;-)
En á laugardeginum var mér svo boðið í mat til ömmu hennar Ólafar, Ólafar. Það var mikil veisla og góð og graflax og fínerí .. nææææsss...
En .. í gær fórum við svo .. ég milfríður og skonjan á ljósmyndasýningu í perlunni.. hvílíkir menningarvitar... Það var ljósmyndasýningin en dag i Sverige.. eða í lauslegri þýðingu einn dagur í Svíþjóð.. nú .. á engilsaxnesku.. one day in Sweden... mjög skemmtileg sýning og endurspeglar í raun sænskt þjóðfélag og mannlíf.. fullt af myndum.. allar teknar sama daginn eða 3. júní í fyrra.. gaman að þessu og ef þið hafið ekkert við að vera, skora ég á ykkur til að kíkja...
En nú er ég að verða búin með helgarsöguna.. nei nei.. tók snilldarræmu í gær Cold Mountain.. bara góð.. bara falleg.. sorgleg.. hlægileg.. ohh...
Jude Law klikkar heldur ekki... jöööömmmmíííí...
En kannski meira síðar.. ætla að reyna að fara að vinna eitthvað...
Mánudagur til merkilegheita...
Stínan loggar sig út..
|
posted by Kristin @
8:31 f.h.
|
 |
ÚÚúúúúúffffff.... það er lægð yfir landinu
ég er bara hreinlega ekki að meika þetta... var bara geispandi og asnaleg í dag í vinnunni og svo reyndi ég að vera lífleg eftir vinnu og fór í IKEA og aðeins í bakarí eftir vinnu.. rosa hress... á yfirborðinu.. svo þegar heim kom smellti ég mér í pídjeisið og lagði mig aðeins. (steinrotaðist í 2 tíma...) úff púff... er núna aðeins að jafna mig á því...
En ég er búin að vera dáldið í sukkinu upp á síðkastið og nú finn ég að ég er gjörsamlega komin með nóg af sjálfri mér,, á mánudaginn (ég veit að ég er búi að segja þetta.. en) þá ætla ég að hætta að borða nammi.. nema á lau.. og hreyfa mig 4 sinnum í viku,, raunhæf markmið ekki satt?? vonandi virkar þetta á mig... og ég kem hress inn í veturinn,,, jei ekki alveg að höndla skammdegið svona... sé það alveg í hendi mér.. tralllalllala...
En vinkona mín hún dísa er að fara norður á EGO um helgina.. öfund öfund væri alveg til í að skella mér.. en ég er víst að fá skemmtilega gesti í staðinn sem er mikil snilld...
heyriði meira síðar....
lifið í lukku en ekki í krukku....
stínan kveður
|
posted by Kristin @
7:39 e.h.
|
15.9.04  |
Komiði sæl
jæja stínan aftur komin á íslenska grundu... eftir velheppnaða ferð til baunalands.. Þetta var mikil rólegheitahelgi.. bara næs.. ég og Haukur höfum án efa heimsótt flesta bari (nei vó.. aðeins að ýkja) en nokkuð marga bari á stór kaupmannahafnarsvæðinu,, og merkilegt nokk þá var bjórinn bara mjög góður á öllum stöðunum.. Carlsberg special er mjög góður drykkur og mitt nýja uppáhald.. kalli spes eins og ég kalla hann er dáldið dökkur carlsberg og ég hef því miður ekki rekist á hann í búðunum hérna heima.. en vonandi verður á því breyting á komandi misserum.. En ég nenni ómögulega að skrifa ferðasöguna hérna á veraldarvefinn þannig að þeim sem fýsir í frekari fróðleik geta bara hringt í mig eða komið í heimsókn á háteigsveginn.. ég og sonja tökum öllum vel.. við höfum allavegana ekki hent neinum út ennþá.. þannig að bara fíl frí tú stop bæ..
Ég er að hugsa um að fara í bíó í kvöld og ég hlakka mikið til.. Myndin sem ég stefni á heitir Dís og er víst bara það fyndnasta.. ekki skemmir heldur að Gunnar vinur minn Hansson leikur í henni... slef.. slef.. bara snillingur og ekkert nema það!!! En það er náttla bara mitt persónulega álit,,.
Ég læt vita hvernig mér finnst myndin,.. næst þegar ég gef mér tíma til að blogga.. en nú er svo komið að það á að skrá niður í hvað mar eyðir hverjum einustu fimm mín í vinnunni.. prófa það kerfi í vikutíma til að byrja með.. örugglega ekki vel séð að vera að kíkja mikið á póstinn sinn eða athuga hverjir eru loggaðir inn á msn... hmmm..
En meira síðar...
stínan kveður (í bjórafeitrun frá helginni.. tæred end slípí..)
|
posted by Kristin @
1:32 e.h.
|
13.9.04  |
Grítings..
wasöpp?? heyriði allt gott að frétta af búranum í háteigsveginum .. allavegana þeim sem er með herbergi sem er innangengt frá ganginu.. frá búranum sem er með herbergi innangengt frá stofunni held ég að sé líka bara allt gott að frétta.. veit ekki annað...
Eeeennn.. helgin var góð.. við milfírður ,, nei filmírður.. nei milfríður.. og þergbóra ,, beregbóra.. nei bergþóra.. fórum á ljósanótt í Kebblavík og kíktum á menninguna þar.. það var mikil snilld og margt að sjá... þar voru sýningar.. gallerý og ýmsar uppákomur.. þegar við vinkonurnar vorum orðnar svangar og þreyttar eftir alla menninguna og allar pælingarnar.. hugðumst við tylla okkur og fá okkur snæðing.. eenn nei nei!!! þá var bara allt fullt á öllum helstu kaffihúsunum og þá voru góð dár ríð ,, nei ég meina góð ráð dýr... en til að gera langa leiðinlega sögu stutta.. þá brugðum við á það ráð að fara bara heim til reygjavígur og fá okkur snæðing á kaffihúsi þar... og þannig fór um sjóferð þá!! málið er dautt... ekki orð um það meir..
En jæja svo fór Milfríður á djammið á lau.. og ég þurfti náttla.. eins og góðri vinkonu sæmir að veita henni andlegan stuðning í þynnkunni daginn eftir og við tókum spólu og keyptum nammi og mjólkurgraut frá nítjánhundruðfjögurtíuogfjögur.. ekta þynnkustemming.. jíha..
en jæks.. var að horfa á 70 mín og nú er að byrja the man show.. sem er merkilegt fyrirbæri.. ég ætla ekki einu sinni að fara út í hvað er verið að tala um núna .. en dáldil karlremba.. en ok.. verð samt að segja að þeir eru að tala um manpons núna.. sem eru karlmanns tampons.. gegn rasssvita.. úfff.. en allavegana ætla að fara að hætta þessu blaðri og standa upp og skipta um stöð..
... búrar lifi...
Háæruverðuga Kristín frá Holti býður góða nótt...
|
posted by Kristin @
10:55 e.h.
|
6.9.04  |
halló skralló...
er komin föstudagur eða hvað???? jíha.... vei... ekki slæmt huh?? en þessi vika flaug áfram með ógnarhraða.. hraða ljóssins hvorki meira né minna...en það er bara hið besta mál og nú eru bara 6 dagar þangað til að ég fer til baunalands.. sem er mikil snilld..
En ég og Milfríður gerðum eitt mjög sniðugt í gær.. við fórum í kringluna og frú milfríður keypti sér geðveikar gallabuxur.. rosa flottar.. og þá var nokkurn veginn takmarkinu náð.. en svo á leiðinni út með freshcetta pizzu í annarri hendi og léttpoppkorn í hinni tókum við eftir vél sem tekur af manni mynd og prentar út á límmiða.. nú AUÐVITAÐ þurftum við nauðsynlega að eiga mynd af okkur á límmiða eins og gefur að skilja... þetta er mjög skemmtilegt og ég vil bara nota tækifærið og skora á hina búrana að fara og fá sér límmiða.. við getum svo bíttað.. en þetta er mjög fyndið og okkur leið eins og 12 ára aftur.. en hinar stelpurnar sem biðu eftir því að komast að (við tókum dáldið langan tíma í þetta;-)) voru ekki mikið meira en það... hehehe... gamangamangaman....
En elsku dúllurnar mínar .. vonandi eigið þið góða helgi.. og sonja góða ferð til höfuðstaðs norðurlands... vildi að ég væri líka að fara búhúhú... en koma tímar koma ráð... það er víst ekki hægt að gera allt...
Ég kveð að sinni.. en á örugglega eftir að hripa eitthvað niður um helgina..
óver and át...
Kristín frá Holti
|
posted by Kristin @
10:11 f.h.
|
3.9.04  |
Halló halló..
ég sá að það var einhver búin að hripa eitthvað niður í commenta dálkinn varðandi það sem ég skrifaði í gær... ég veit ekki hver það er að svo stöddu máli þar sem viðkomandi skrifaði undir dulnefni.. Ég skora á fólk sem tjáir sig á veraldarvefnum að stíga fram!! ekki vera feimin og setjið nafnið ykkar undir.. ekki fela ykkur heima bak við lapptoppinn og flissa inn í ykkur...
Eeeeeeen auðvitað er ég að fara til útlanda og það er mikil snilld.. og svo er ég í fínni vinnu.. og ég horfði á spólu með vinkonu minni í vikunni ,, já auðvitað hef ég margt til að gleðjast yfir og síður en svo vil ég sýnast vanþakklát... höfum það á hreinu!!!!!! en þeir sem skrifa hér og bögga háæruverðuga Kristínu frá Holti eru vinsamlega beðnir að gera það undir nafni framvegis.. takk og bless
Kristín kveður að sinni...
|
posted by Kristin @
2:34 e.h.
|
1.9.04  |
Guðminngóður..
Ég vil bara biðjast afsökunar.. í fyrra bloggi mínu sagði ég að það væri kominn september... en ég vil leiðrétta þann mis-skilning.. það er ennþá bara ágúst.. reyndar 31.ágúst.. en ágúst engu að síður.. ég vona að mér fyrirgefist..
með bestu kveðjum
títtnefnd (hér á blogginu) Kristín frá Holti
|
posted by Kristin @
3:06 e.h.
|
31.8.04  |
HALLÓ!!!!!! hvað er um að vera?? hvernig getur þetta gerst?? það er kominn september og sumarið búið!! búhúhú... ég skil þetta ekki og ég sem er ekki búin að gera baun í sumar... alltaf eins og ég væri að bíða eftir einhverju.. sem svo aldrei kom.. mar ætti að skammast sín.. áður en ég veit af verð ég komin á Hlíð og hugsa ..
jæja nú er ég komin á Hlíð (rökrétt hugsun).. nú er kannski fullseint að fara í útilegur og ferðalög.. mjöðmin þolir illa kulda og svo æsist gigtin upp um leið og ég fer út fyrir bæjarmörkin.. ég get heldur ómögulega verið að fara.. ég þarf að pissa á 20 mín fresti og svo framvegist!!! dísessss... úúú verð að fara að gera eitthvað í mínum málum fyrst ég get ekki sett tímann á hóld!!
En nú er heldur betur að styttast í köben ferðina og það verður nú aldeilis gaman.. ég get allavegana státað mig af því að ég er að dríbba mig til köben.. og það eru bara 9 dagar;-)júhú!!
Sá snilldarræmu í gærkvöldi.. Kill Bill 2.. hún er svo súr.. að hún er geðveikt svöl.. mæli hiklaust með henni.. auðvitað verður mar að sjá nr 1 fyrst.. og kíp an ópen mænd..
En tarantino klikkar ekki.. (sjá hans fyrri verk.. fremst í flokki er þar án efa Pulp fiction..) en ok ok.. játa það samt á mig að ég er ekki búin að sjá margar myndir, en þær sem ég hef séð hafa verið góðar.. og hana nú..
En ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja til friðar á jörðu.. og auðvitað skora á hina búrana til blogga.. bloggiði búrar bloggiði!!
en þangað til næst
hafið það sem best;-)
Kristín frá Holti
|
posted by Kristin @
2:45 e.h.
|
 |
halló halló..
hvað segir mannskapurinn?? Er orðin frelsuð af megrunaráróðri sem er búinn að dynja á mér síðastliðnar klukkustundir. Fyrst horfið ég á kastljós og þar var verið að tala við gaurinn sem gerði myndina supersize me.. sem borðaði ekkert nema mcdonalds í mánuð... hann þyngdist sumsé um 11 kg.. kólesterólið hækkaði mikið.. lifrin fylltist af fitu og leit út eins og hjá versta drykkjumanni..og fleira og fleira.. Það er sem sé ekkert sniðugt að vera að borða allt of mikinn makka!! Nú svo var þátturinn Ed þar sem feiti strákurinn er búinn að fara í megrunaraðgerð og búinn að leggja mikið af.. Núna er ég svo að horfa á þátt um Atkins kúrinn.. úff úff..
ég held að það sé bara ein leið fær þ.e. -- fara fram í eldhús og útbúa.. hehe ...nei nei bara borða hollt.. ávexti grænmeti og hreyfa sig.. hætta í skyndibitum og ég held bara að sleppa Atkinsinum... En fyrst það er ekki annað að gera.. af hverju í ósköpunum er þetta svona erfitt?? mér er spurn..
En bla bla.. vonandi er allt gott að frétta hjá ykkur.. ég var boðin í mat í gær til dönsku vina minna Camillu og Finn. Þau eru að fara til danmerkur aftur á laugardaginn ég fékk voða fínan laxafisk og fínerí.. ótrúlegt hvað þau eru búin að ferðast um landið í sumar.. ég var að skoða myndir og ég held hreinlega að það sé ekki sú þúfa eða það barð sem þau hafa ekki komið á.. gott hjá þeim.. vonandi á maður þetta eftir á næstu árum.. ef mar hefur nú einhvern með sér sem hefur gaman að ferðast gaman að því..
En heyriði .. ég bið ykkur vel að lifa.. og býð auðmjúklega góða nótt
Kveðja frá stínu spikínu
|
posted by Kristin @
8:51 e.h.
|
25.8.04  |
Æ elsku dúllan mín.. (þ.e búri nr 3) só sorrí.. bara grín bara grín!!!
Ekkert persónulegt... gerðu bara grín að okkur í staðinn.. skora á þig..
kveðja frá stínunni sem var bara að spauga
|
posted by Kristin @
12:56 e.h.
|
24.8.04  |
Guten Abend :)
Þriðji Búrinn mættur til að blogga.... þetta ku víst vera besta leiðin til að tjá mig þessa dagana þ.e. með skrifmáli! Það er ekki nóg með að ég heyri frekar illa sökum þess að ég hef einungis eina heila hljóhimnu í kroppnum heldur virðist fólk eiga líka erfitt með að skilja mig þar sem ég hef nælt mér í einhverja kvefpest og er nokkuð hás. Ég verð nú bara að segja að ég hef fengið mig full sadda af háðglósum og ómerkilegum athugasemdum frá hinum búrunum, samstarfsfólki og kalli......VILJIÐ ÞIG GJÖRA SVO VEL AÐ HÆTTA ÞESSU....mér finnst ekkkert fyndið að þurfa að segja sama hlutinn tvisvar eða þrisvar aftur bara vegna þess að fólk hlær svo mikið þegar það heyrir mér......ég veit að ég heyri illa en ég heyri yfirleitt vel þegar fólk er að apa HA! eftir mér.....ÉG GET EKKERT AÐ ÞESSU GERT.....grenji grenji.....
Plís verið góð við mig ;/
Over and out..........venlig hilsen, auf wiedersehen... u nóv hú
|
posted by Kristin @
9:55 e.h.
|
23.8.04  |
Góða kvöldið
stínan hérna.. jæja jæja bara komið föstudagskvöld og vonandi allir í góðum fíling???? Ég er það allavegana.. jíha angale angale ebba ebba..
Þessi vika er búin að vera dáldið strembin.. ég var að byrja að kenna streitu og lífshætti.. ég var örugglega stressaðasta manneskjan á staðnum.. en þetta gekk bara fínt:) Nú er bara helgi framundan með menningarnótt og látum.. mikið gaman og mikið stuð..
hummm ég er alveg heiladauð og dettur ekki í hug ein einasta frumleg hugsun
vonandi get ég skrifað eitthvað sniðugt eftir helgina...
góða helgi búrarnir mínir;---)
kveðja frá stínu
|
posted by Kristin @
8:30 e.h.
|
20.8.04  |
jæja komið þið nú öll blessuð og sæl
mikið er gaman að sjá hversu margir hafa safnast saman hér fyrir framan viðtækin til að fylgjast með þessari fyrstu útsendingu... og þú þarna í rauðu peysunni.. já!! þú .. ég ætla bara að bjóða þig hjartanlega velkomin(n) .. réttu nú aðeins úr bakinu og komdu þér vel fyrir... nú hefst útsendingin..
Jæks .. eitthvað er mér nú farið að förlast.. þið verðið af afsaka það er bara orðið svo langt síðan ég hef bloggað eitthvað og strax þegar ég ætlaði að byrja á að skrifa eitthvað viturlegt.. kom bara tóm steypa.. en þetta hins vegar minnir mig á þegar ég var að horfa á einhvern þátt með Halla og Ladda þegar ég var bara kjúklingur (kjúklingur=lítil stelpa) og þá sögðu þeir þetta einmitt.. Hey þú!!! já þú... þarna í rauðu peysunni... hvað ertu að gera.. farðu og.... og svo framvegis.. og ég náttla hélt (í minni rauðu peysu) að þeir gætu hreinlega kíkt á mig í gegnum sjónvarpið og að þeir væru að tala við mig... hélt það í þó nokkuð langan tíma... jafnvel ekki alveg sannfærð enn að þeir hafi ekki verið að tala við mig persónulega.. hmmmm en allavegana... góð saga...
Kannski að mar taki skurk í bloggmálum og farið að hripa eitthvað markvisst niður og líma það á veraldarvefinn fyrir gesti og gangandi...
En allt er gott í borg tækifæranna... bara búið að vera sól og blíða og ekkert nema það... ég er líka að fara í smá helgarferð til köben .. bara eftir 3 vikur... jei..hlakka bara til:)
En heyriði.... best að byrja rólega... ekki of mikið bull í einu...
Hafið það sem best öllsömul
með virðingu og vinsemd
Kristín frá Holti
|
posted by Kristin @
12:33 e.h.
|
18.8.04  |
jújú hér sé stuð og fullt af lífi....mar bara búinn að vera í sumarfríi(alveg í 4 daga) og í sólbaði þess á milli, hef ekki náð upp neinum ítalíulit en er orðin svona nett mórauð í framan :)
Í fréttum er nú mest lítið, ekki er maður óléttur eða giftur ennþá og veit ég reyndar ekki um neinn sem svoleiðis er ástatt fyrir to tell the trouth, en ef einhver veit eitthvað meira en ég endilega lát í sér heyra.
Er eiginlega búin að gleyma hvernig á að fara að því að röfla endalaust um ekki neitt á veraldarvefnum svo ég held ég hætti því bara hið snarasta. Endilega farið að setja á ykkur bloggbrækurnar og bloggið sem aldrei fyrr. Já meðan ég man, ég er nú hissa á Stínu að vera ekkert búin að blogga, það er nú helst hún sem hefur eitthvað fréttnæmt að segja...eða hvað? ;)
já, svo heiti ég Bergþóra
|
posted by Kristin @
10:24 e.h.
|
17.8.04  |
Jæja jæja jæja... hvað segir fólkið??? datt í hug að blogga smávegis... its bin a long tæm jú nó... en það hefur svosem ekki margt á daga mína drifið frá því að ég var að babbla síðast en... ég fór senst til Akureyrar um síðustu helgi... skemmti mér hið besta.. var samferða foreldrunum norður og það var bara gaman.. minnti mig á árin þegar ég var eina barnið og sat ein í aftursætinu á ferðalögum.. áður en ég eigaðist bróðir sem var alltaf bílveikur og ferð frá akureyrar til reykjavíkur tók skuggalega langan tíma... en núna var þetta bara nokkuð snögg ferð.. kannski skýring á því en ég var syfjuð mjög og svaf helming ferðarinnar.. heyrði svo í foreldrunum pískra í framsætunum.. er hún sofandi?? ég held hún sé að vakna!! og svo framvegis.. ég þurfti virkilega að sitja á mér.. til að haga mér ekki eins og illa uppalin unglingsómynd sem er vanþakklát, viðskotaill og lætur allt fara í taugarnar á sér... sem ég er náttla ekki..;-/
Nú ef ég ákvað svo að opna augun.. til að kíkja á staðhætti og tjékka á hvort sjoppa væri í nánd.. brutust út mikil fagnaðarlæti!!! Nei!! er hún ekki vöknuð hún stína??? hvað segir þú?? svafstu vel?? veistu hvar við erum?? varst þú að fá sms?? svona spurningaflóð dundi á mér á nokkrum sekúndum.. og þeir sem til þekkja vita hversu hress ég er þegar ég er alveg nývöknuð.. höhumm.. en allavegana.. skemmtileg ferð.. bæði fyrir mig og þau;) þegar ég var loksins vöknuð fór ég að syngja með undir bláhimni, stína ó stína og fleiri góðum slögurum.. og við skemmtum okkur vel.. bara ég..mamma mín og pabbi minn... kannski eigum við eftir að fara í ferðalag á hverju sumri bara við þrjú!!! hehehe... Rúnar komin með kærustu og fjölskyldu og ég límd á mömmu og pabba... skæl skæl...
EEEn svo komum við á eyrina.. þar er alltaf ljúft að vera .. yndislegt veður.. hitti Önnu Lilju og stubb sem er bara sætastur í heimi.. svo var farið út á lífið á föstudagskvöldinu.. alltaf gaman að fara á djammið í góðu veðri... En stundum .. bara stundum samt efast ég sterklega um að ég sé frá Akureyri.. ég þekki hreinlega engan ... ekki á djamminu,, ekki á Glerártorgi.. jú ég segi það ekki kannast svona við hina og þessa.. hef séð marga áður.. en sorglegt samt sem áður... butt læf gós on..
En tíminn líður hratt... nú er komin miðvikudagskvöld.. ég er svo að fara aftur til Akureyrar um næstu helgi.. dísess... Anna Lilja vinkona er að skíra..jú jú það verður bara gaman... Við dísa skordal ætlum að fara á djammið.. gaman að fara með henni á djammið á eyrinni.. það eru einhver ár síðan við höfum djammað saman þar!
En nóg í bili....
hafið það gott elsku dúllurnar mínar.... bestu bestu bestu kveðjur Kristín
|
posted by Kristin @
10:18 e.h.
|
14.7.04  |
ég er að fara í sumarfrí og ég held að það á bara eftir að vera skemmtilega skrítið að vera að gera bara eitthvað á LAUNUM ......
Anyway þá er ég eftir 2 daga farin í fríið og stefni norður á bóginn......so farvellllllll
Skonja the skonster 
|
posted by Kristin @
7:39 e.h.
|
 |
Góðan daginn !!! Já já þetta er ég Skonjan...ótrúlegt en satt, eftir langt hlé.......komin aftur. Það fyndna er nú samt bara það að ég hef hreinlega ekki neitt að segja !!! vvvvííííí :) jú jú hvað er þetta, ég er að fara til Danmerkur í ágúst að heimsækja Dagnýju og bumbubúann og alla hina líka auðvitað, hlakka alveg rosalega til þar sem ég verð að segja að ég sakna hennar Dagnýjar minna doldið.....væri nú gaman að hafa hana hérna á landinu. Svo var ég á Laugarvatni í gær í vinnunni í sólbaði og svo var nú líka farið í ratleik, grillað og farið á árabát og kajak. En mest skemmtilegast er nú að segja frá honum litla frænda mínum honum Mikael Leon sem er sætastur í heimi og og og og ég er búin að passa hann og allt :) Alveg frábært lítið kríli. Annars er allt gott títt, við Stína stuð vorum að flytja um daginn. Fluttum nú ekkert langt, bara einni hæð ofar. Núna er ég að reyna aðlagast því að eiga herbergi sem er jafnstórt og fataskápurinn sem ég hafði á neðri hæðinni!!!! En þetta er voða kósí og ég er ekki búin að reka mig neitt voðalega oft undir súðinn......heheheheheheh. Kallamálin ganga vel en ég er samt ekki komin í sambúð, ólétt, búin að trúlofa mig eða fá mér tattoo á rssinn með nafninu hans....tek þessu nú bara nokk rólega.Hei jú auðvitað ....ég er á fara á Metallica á sunn kvöld.....vvvvvváááá held að það verði rosalegt og á Fame í kvöld...hehehehe Metallica og Fame!!!!!
Ok búin með bullið í bili
Over and out the Skúnster
|
posted by Kristin @
3:35 e.h.
|
2.7.04  |
Hæ hó jibbí jei og jiiibbbííí.. jei.. það er komin 18. júní!!! og það er föstudagur... heija heija heija heija heija heija heija heija hei.. Nei.. ein að tapa sér í gleði yfir komandi helgi;-) Ekkert nema gott um það að segja.. EN hvernig var 17. júní hjá ykkur?? ég skal segja ykkur hvernig minn 17. júní var.. þegar ég átti að vera að halda upp á afmæli lýðveldisins og strunsa stolt niður á austurvöll eða hvar sem reykvíkingar halda annars upp á 17. júní.. lá ég í sófanum og horfi á bíómyndir.. usss... það á ekki einu sinni að segja frá þessu.. en fyrst horfi ég á Mystic river.. þrusugóð ræma og svo horfði ég líka á dönsku gamanmyndina., með rómantíska ívafinu.. det eneste ene... hún er snilld.. mæli eindregið með henni;-) hún er bara sæt og skemmtileg..
Þannig að 17. júní 2004 er liðinn og ég gerði ekkert til að sýna hversu stolt ég er yfir að vera íslendingur í "frjálsu" lýðveldi og hversu barmafull ég er af ættjarðarást.. ég ætti að skammast mín.. ég verð að gera eitthvað til að bæta fyrir þetta.. mér dettur helst í hug að ég gæti lesið kvæði eftir gömlu skáldin... sem virtust ekki hugsa um annað en ættjarðarást og ísalandið.. en okkur nútímafólkinu til málsbóta þá var ekki komið neitt sjónvarp þegar þessir kappar voru að semja og skálda.. enginn veraldarvefur.. það að skrifa með bleki tók verulega langan tíma og allir höfðu rosa mikinn tíma til að hugleiða... og þar sem fáir höfðu farið til útlanda.. kemur það kannski af sjálfum sjér að auðvitað rituðu allir ljóð og kvæði um ísland... fjöllin.. jöklana og allt þetta.. Nei ég segi svona.. þetta er allavegana mín hugmynd ef einhver hefur betri hugmynd þá vildi ég endilega heyra hana.. En auðvitað væri nú gaman ef ég og fleiri kynnum betur að meta íslenska náttúru.. til dæmis í staðinn fyrir að hlunka okkur í sófann og glápa á endurtekið efni á skjá einum.. Nú er lag.. um helgina verður rölt út í náttúruna.. þó það verði ekki nema út í garð og sogað inn um nefið öll þau áhrif sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða... Vá hvað ég hlakka til... Kannski fara ljóðin að streyma.. hver veit?? Jæja gott umhugsunarefni fyrir helgina... Góðar stundir kæru landar...
Hafið það ævinlega sem best...
Kristin frá Holti
|
posted by Kristin @
2:58 e.h.
|
18.6.04  |
Hellúúú´..
hvað er títt??? Það er orðið sóðalega langt síðan einhver bloggaði síðast.. EN eníveis.. ég er heldur alls ekki neitt viss um að einhver sé að lesa þessa vitleysu sem ég er að hripa niður.. en hvað um það.. það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast.. í fyrsta lagi breggðaði ég mér á heimaslóðirnar og dvaldi á akureyrinni í nokkra daga í góðu yfirlæti.. nú svo byrjaði ég í nýrri vinnu.. geðveikt skemmtilegt jei jei.. mér lýst rosalega vel á mig hérna á reykjalundi.. allt að komast í gang og ég fæ mína fyrstu tvo skjólstæðinga á morgun.. einnig fór ég í sveitina um helgina og dvaldi í bústað hjá Millu snillu í skorradal.. við lögðum af stað fjórar.. þ.e ég Milla, Valdís og Sonja en við gistum bara þrjár.. sonja þurfi aðeins að fara heim og kíkja á kærastann.. þetta var alveg yndislegt og sól og rjómablíða allan tímann.. Mikið spilað, hlegið, ropað og prumpað.. geðveikt skemmtilegt hehe..
en takk fyrir mig í bili..
hafið það gott elskurnar
ykkar stína;-)
|
posted by Kristin @
3:51 e.h.
|
7.6.04  |
hæ hæ hæ hæ... æ hef nó læf.. að minnsta kosti virðist eins og ég sé sú eina sem hefur tíma til að blogga... hummm... sambýlingar,,, what´s up??? ég heimta nýtt blogg.. já heimta það barasta... Kannski er það af því að ég á ekki kærasta að ég hef allan þennan dauða tíma til umráða... ég get alltaf bara ráðið sjálf hvað ég geri.. mjög eftirsóknarvert., eða hvað???
En nóg af væli um að vera ein og yfirgefin... dagurinn í dag var góður.. ég breggðaði mér í sund og náði mér í þennan líka fína rauða lit í andlitið og á axlirnar.. þetta er það nýjasta nýtt og mjög inn og hipp í dag.. amk í baunalandi get ég sagt ykkur.. höhummm... En þetta er góður dagur í dag.. hún Anna Lilja vinkona eignaðist þennan líka fína strák í morgun.. það verður nú gaman þegar hún kemur heim í sumar að kíkja á drenginn... jei jei... En heyriði ollveis a plesjör... vonandi sé ég ferskt blogg þegar ég logga mig næst inn á veraldarvefinn...
Kveðja frá Stínu
|
posted by Kristin @
11:04 e.h.
|
24.5.04  |
hæ hæ hæ hæ... æ hef nó læf.. að minnsta kosti virðist eins og ég sé sú eina sem hefur tíma til að blogga... hummm... sambýlingar,,, what´s up??? ég heimta nýtt blogg.. já heimta það barasta... Kannski er það af því að ég á ekki kærasta að ég hef allan þennan dauða tíma til umráða... ég get alltaf bara ráðið sjálf hvað ég geri.. mjög eftirsóknarvert., eða hvað???
En nóg af væli um að vera ein og yfirgefin... dagurinn í dag var góður.. ég breggðaði mér í sund og náði mér í þennan líka fína rauða lit í andlitið og á axlirnar.. þetta er það nýjasta nýtt og mjög inn og hipp í dag.. amk í baunalandi get ég sagt ykkur.. höhummm... En þetta er góður dagur í dag.. hún Anna Lilja vinkona eignaðist þennan líka fína strák í morgun.. það verður nú gaman þegar hún kemur heim í sumar að kíkja á drenginn... jei jei... En heyriði ollveis a plesjör... vonandi sé ég ferskt blogg þegar ég logga mig næst inn á veraldarvefinn...
Kveðja frá Stínu
|
posted by Kristin @
11:04 e.h.
|
 |
hellúúú.. this is Stína...
Er ekki bara allt gott að frétta eftir svona dag eins og í dag.. sól og blíða úti og frí frí frí framundan... Læf is gúd.. En Nú er um að gera að nýta tímann vel og gera eitthvað sniðugt með þessa frídaga sem framundan eru... öll komment eru vel þegin.. hvað er það sem mar ætlar alltaf að gera þegar mar á frí??? það einhvern vegin gleymist og dagarnir líða áfram og mar gleymir sér í að sofa út og horfa á andsk.. imbann.. EEENNN ekki núna,. not this tæm!!! æ asure jú... Best að fara að skrifa lista... forgangsraða..---> sjálfboðavinna.. gefa blóð.. hlaupa á Esjuna.. fara á Keili.. fara í ræktina nokkra tíma á dag... bera á sig brúnkukrem.. pakka drasli í kassa til að fara með norður.. þvo þvott... finna út leiðir til að borga visareikning frá köben.. laga til.. hekla.. laga parkettið.. fara út að labba... vera með vinum.. keyra norður.. knúsa familíuna.. fara til Eddu vinkonu á hestbak.. labba í Fellsskóg.. úffffffff,,,,,,, best að fara að leggja sig, ég er orðin uppgefin bara á því að skrifa þetta niður.. góða nótt kæru lesendur,,, blæ blæ kveðja frá Kristínu
|
posted by Kristin @
11:58 e.h.
|
23.5.04  |
Gott kvöld... í fréttum er þetta helst... Mikið djamm var í gær í húsi einu að Háteigsvegi í Reykjavík, nokkur kliður og hlátur barst frá íbúð einni í húsinu og raskaði það ró íbúa á neðri hæð hússins.. Vingjarnleg nágrannakona (sem hér í viðtalinu verður nafnlaus) en gengur undir dulnefninu Abba Þóra, sagði að greinilegt hafi verið að í íbúðinni hafi verið nokkurt skemmtanahald, og að áfengi hafi verið haft um hönd.. Abba Þóra segist einnig hafa verið nokkuð sár yfir því að vera ekki boðin í fyrrnefnt teiti og ákvað því að hafa samband við fjölmiðla til að vekja á þessu athygli.. Með þessu móti vonast Abba Þóra að verða boðin í næsta teiti, hún segir ennfremur, að verði hún boðin, mun hún lofa að þrífa sameignina fyrir íbúa hæðarinnar og ánafna þeim stæði að eigin vali fyrir utan húsið.. Hún vonar að með því að bjóða fram þetta rausnarlega tilboð geti vinátta skapast milli fjölskyldu hennar og íbúa hæðarinnar. Hún lýsir íbúum hæðarinnar, (sem eru þrjár ungar stúlkur) sem skemmtilegum, heiðarlegum og þrifalegum leigjendum... Abba Þóra vonast eftir svari frá íbúum hæðarinnar sem allra allra fyrst...
|
posted by Kristin @
11:35 e.h.
|
 |
jæja jæja jæja... er ekki bara stína komin aftur á klakann eftir velheppnaða ferð til baunalands... En mikið er nú annars gott að vera komin heim og sofa í sínu eigin rúmi;-) yndislegt.. En ferðin var nú aldeilis skemmtileg og ég gat keypt mér hitt og þetta, en aðallega þetta samt og smá af hinu.. en Danmörk er annars mjög skemmtilegt land.. betra veður en hér, ódýrari bjór og rauðvín.. H&M verslanir á hverju horni.. þar sem fötin eru ódýrari en ýmislegt.. Þá fer maður að spyrja sig af hverju í ósköpunum mar er að húka hérna á fróni.. En við höfum það nú andsk.. gott hérna líka.. engin hætta á að maður fari að lepja öl á hverjum degi.. og verði bakkusi að bráð.. og einnig kann maður meira að meta hið ljúfa líf þá sjaldan mar breggður sér á erlenda grundu;)en allt gott um ferðina að segja.. ef einhverjum vantar upplýsingar um gott gistiheimili eða slæmt.. þá er bara um að gera að hafa samband.. einnig er ég orðin soldið vel að mér í strætó-, lestar og Metró ferðum.. En Metró kerfið er annars nokkuð merkilegt fyrirbæri.. mar þarf að fara ofan í jörðina eins og moldvarpa.. heilar þrjár hæðir og fer þá í einhverja hraðlest sem fer á milli staða .. næstum með hraða ljóssins.. og engin lifandi mannvera er við stjórnvölinn... mar hreinlega leggur líf sitt í hendur tölvu sem stýrir þessu einhversstaðar frá... ég býst nú samt við að það sé eitthvað manngrey sem situr við tölvuna og passar að allt gangi vel.. og ef það gengur ekki vel geri þá einhverjar ráðstafanir.. sem þá henta hverju sinni.. en NÚ er nóg komið af vitleysu...
Meira síðar.. ég þarf nauðsynlega að fara að kjamsa á toblerone og Haribo nammi... hef engan tíma til að vera að blogga í ojeblikked.. en meira síðar..
kveðja frá stínu sem er stolt af því að vera íslendingur.. hafði það gott úti í baunalandi en er fegin að vera komin heim.. túrilú... yfir og út
|
posted by Kristin @
9:23 e.h.
|
21.5.04  |
Ætli sé ekki best að reyna að halda uppi heiðri síðunnar þar sem aðalbloggarinn er staddur í Danaveldi. Einhver var að rukka um slúður frá iðjudjamminu en ég get nú lítið hjálpað í þeirri deild því ég held ég hafi misst af öllu því bitastæðasta. Ég gat ekki séð að neinn hafi ælt fram af svölunum til dæmis, vissulega var e-ð trúnó í gangi en ekki varð ég vör við áfengisdauða. Það hefur þá gerst niður í bæ, og kæmi mér svo sem ekkert á óvart að það hafi gerst því slíkt og þvílíkt var áfengismagnið sem fór ofan í mannskapinn.
En ég held að það hafi verið mál manna að þarna hafi farið nokkuð vel lukkað teiti og vonandi verður framhald á þessari hefð.
Annars er nú ekkert að frétta svosem, held samt að ég sé búin að nappa fyrsta sætinu af Sonju í Sólheimakeppninni. Þá er bara næst brókarsundið í Skorradalsvatni.....
Best að gleyma ekki að maður á auðvitað miða á besta stað á Metallicu tónleikunum en áður en að þeim kemur verður nett upphitun á Korn.
Bið þá bara að heilsa í bili, Stína hlýtur að byrja á því að blogga þegar hún stígur út úr vélinni uppfull af skemmtisögum af sjálfri sér í Köben, Bergþóra
|
posted by Kristin @
12:37 e.h.
|
17.5.04  |
Hellllúúú
Vil bara byrja á því að óska Stínu til hamingju með að vera hætt í vinnunni og vera komin í sumarfrí. ég held Stina mín að þú eigir hreinlega eftir að sakna allra umræðnanna og spurninganna frá fyrrverandi vinnufélögum þínu!!! Hvað ertu búin að elda oft í vetur ? Þarftu límband? af hverju þarftur límbandi ? Hvað ertu að fara gera ? Afhverju notaru ekki bara þetta í staðinn......nei þetta er alveg ómögulegt. Í Danmörku þá sko......... ég og fjölskylda mín við fórum út að hjóla...........þegar ég átti stelpuna mína þá ..........
Stínan klikkaði svona rosalega og missti af 50 kalli þar sem hún þorði ekki að kalla vinnuféla sinn Frosk!!!! brarbabrabrabra önd ertu.
Jahérna ég er að gleyma aðalatriðinu......djammi djamm á fös kvöld.... já nú á að fá aér aðeins í aðra stóru tánna :) kominn tími til....er búin að standa mig svona rosalega vel í þurrkinum. Er samt að stefna á það að sleppa Scooter dansinum í þetta sinn :/ nema nátturulega tilboð berist um annað :)
Æji bla bla massa bull í gangi
Farvel í bili Scoonja
|
posted by Kristin @
3:06 e.h.
|
6.5.04  |
Jæja stínan hérna megin...
nú hafa stórmerkileg tíðindi átt sér stað.. EEENNN... í dag var síðasti vinnudagurinn minn... mjög skemmtilegur dagur.. ég fékk kveðjugjöf... kort og ekki skemmdi fyrir að ég fékk rauðvínspottinn að auki.. excellent.. svo var klipping í kvöld og grill... frábær dagur.. en ekki nóg með það heldur þá fengum við skonja íbúð til leigu.. allt að gerast allt í gangi allt í gír.... jíbbí... ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn þá fer ég líka til dk.... það verður æði pæði... ekki slæmt huh??? en nóg af monti.. hvað er svo að frétta af ykkur???
en endilega farið að blogga ... já svona drífa sig NÚNA...
leiter stínanananan
|
posted by Kristin @
12:09 f.h.
|
 |
hellúúú... stínan hérna ... long tæm nó blogg... butt eníveis...
bara 3 vinnudagar eftir og svo er ég komin í langþráð sumarfrí.. vei vei vei... fullt að gerast og tíminn verður örugglega fljótur að líða.. en dagurinn í dag er búinn að vera góður mjög og til margs nýtilegur.. tja.. fyrst má þar nefna að undirrituð vaknaði klukkan 8, ó já.. klukkan 8!!! og byrjaði á því að þrífa og þrífa og þrífa... og ekki veitti af.. en það er bara alltaf svo bjart á morgnanna að það er ekkert hægt að sofa.. og ef ég get ekki sofið.. þá hlýtur að vera bjart..
en mér líst vel á fyrirhugað teiti á fös... vonandi verður rífandi stemming.. endilega kommentið á hvort þið ætlið að koma.. hvort það sé búið að redda sér búning.. hvað á að drekka og så videre...
en takk fyrir mig að sinni.. kv. Stínan
|
posted by Kristin @
11:45 e.h.
|
2.5.04  |
Góðan og blessaðan :)
Mér hafa borist til eyrna tíðindi góð og sé ég mig knúna til að koma þessu áfram. Ég er semsagt að heyra útundan mér að í dag séu 20 manns búnir að melda sig í partý þann 7. maí. Það þýðir í fáum orðum: við þurfum fleiri stóla........ég sé annars fram á stuð stuð stuð og aftur stuð. Ég er langt komin með saumaskap og frágang á húlapilsinu og hawaii skyrtunni og býð nú bara eftir kokteilnum og sólinni. Það sem er soldið að skyggja á þetta teiti er sú staðreynd að þessa helgi er ég hryllilega bókuð á ráðstefnu á Grand Hótel og stendur hún yfir fös, lau og sun. Gaman að segja frá því að allir áhugaverðustu fyrirlestrarnir eru strax klukkan 8 á laugardagsmorgun....En ég finn e-ð út úr því
Hlakka bara til að sjá sem flesta 7. maí, helst með stóla með ykkur ;) kveðjur bergþóra
|
posted by Kristin @
3:34 e.h.
|
29.4.04  |
halló testing testing... hvað er með þessi tákn sem koma alltaf þegar ég blogga... er bara aðeins að prófa hvort þetta sé að virka.. over and át... stína
|
posted by Kristin @
8:40 f.h.
|
27.4.04  |
hell???....
hva? segist... j? endalaust kling kling ? t?ntunni... ekki svefnfri?ur fyrir ?essu... en samt er hennar herbergi alveg hinumeginn ? ?essari l?ka gr??arst?ru ?b??,, hehe en annars er bara gott a? fr?tta fr? st?nunni... bara hress og sona...ekkert a? segja ? rauninni...bla bla en j?ja... best a? fara a? dr?fa sig ?t ?r h?si ? morgun og upplifa eitthva? til a? skrifa ? bloggi?... jess ?ll d?itt..
b?j? kv.. st?nan
|
posted by Kristin @
10:47 e.h.
|
26.4.04  |
KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING........þetta er hljóðið sem heyrist frá eggjastokkunum mínu núna ! Ég á svo fallegan og yndislegan frænda að það er bara ekki hægt að lýsa því með orðum....:)
Kveðja frá Akureyri, Tante Sonja
|
posted by Kristin @
8:10 e.h.
|
24.4.04  |
h? h?
gle?ilegt sumar b?rarnir m?nir... hafi? mikla ??kk fyrir veturinn, blessu? s? minning hans:) en n? tekur vi? betri t?? me? bl?m ? haga... jei ?a? er svo skemmtilegt a? ?a? s? komi? sumar.. geggja? ve?ur ? dag me? tilheyrandi brasi... grill, kaupa gask?t... allt ver?ur skemmtilegt og allir fullir af orku:) en vildi bara kasta ? ykkur kve?ju... b?j?..... kv. st?nan
|
posted by Kristin @
12:11 f.h.
|
23.4.04  |
Gleðilegt sumar og takk kærlega fyrir veturinn :)
Túrílú Sonja
p.s. ég er búin að setja kaggann á sumardekkin og hann er bara asnalegur!
|
posted by Kristin @
5:00 e.h.
|
22.4.04  |
Jæja þá er nú bara kominn tími á að Der Bloggmeister láta í sér heyra !!!!
Þótt að það sé í raun þriðjudagur er en eins og það sé fimmtudagur vegna þess að sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn sem mundi verða eins og laugardagur, svo þarf reyndar að mæta í vinnu á föstudaginn nema fyrir þá sem verða í Þýskalandi þá ;) sem mundi verða eins og sunnudagur .....hhmmmmmm.......ég held samt að ég komi út í plús vinnulega séð að hafa sumardaginn fyrsta sem frídag, fyrir utan þá skemmtilegu staðreynd að þá er komið sumar...jibbbbííííííí.
Nú það sem er títt í mínu lífi er að ég er að fara dríbba mig í greiðslumat svo ég geti verslað mér 1/2 íbúð til viðbótar.........og ég er orðin væmnari en allt sem væmið er og það fyndna er að ég er hreinlega bara að fíla það :) Helstu afrek mín síðustu daga er að stara í sett af sætum ljósbláum augum og um leið vera með sólheimaglottið allan hringinn ! Þetta er nú bara nokkuð gott miðaða við að hafa lýst því opinberlega yfir að ég væri nú bara hætt að leita mér að kalli og ætlaði að leggja mig alla fram við að aðstoð Stínu í leit sinni að einhverju nothæfu.............sorry Stína ....en ég hefði nú bara verið vitlaus ef ég hefði sleppt þessu!
Það væri nú bara gaman að hafa smá grill-teiti til að fagna komu sumarsins....með bjór :)
Well nóg í bili af bulli, Skonjan mussy muss
|
posted by Kristin @
1:33 e.h.
|
20.4.04  |
Góðan dag og gleðilega vinnuviku :)
Vil bara minna á kaffihúsaferð annaðkvöld, þe. þriðjudagskvöldið 20. apríl klukkan 20. Staðsetningin er Enrico´s sem áður var Kaupfélagið, neðarlega á Laugaveginum. Vonandi hafa allir fengið viðeigandi skilaboð en látið þetta endilega berast ykkar á milli. Veit ekki hvort ástæða er til að taka það fram hverjir eru boðnir, en það eru þeir sem telja sig hafa stundað nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri nokkur misseri og luku því námi með láði síðastliðið vor. Endilega mætið
mánudagskveðjur frá Bergþóru
|
posted by Kristin @
11:15 f.h.
|
19.4.04  |
I´m back Y´all!!! djöfull er ég hipp!!! og inn í dag.. engu lagi líkt.. en það er víst enn einu sinni komið sunnudagskvöld og hver veit hvað tekur við af sunnudagsmorgnum!!! ó já ó já mikið rétt það er MÁNUDAGSMORGUN !!!!kræst... þoli ekki mánudagsmorgna... öll vikan framundan... búhúhú.. en best að horfa á björtu hliðarnar það er nebbla frí á fimmtudaginn,, þá kveður okkur vetur konungur og sumarið heilsar.. jei jei jei... hvað eigum við nú öll að gera skemmtilegt á fimmtudaginn?? hömm.. hvað segið þig um grill og öl??? ef það verður gott veður það er að segja??? pælum í því... það þarf nú samt ekki að láta mig vita með löngum fyrirvara því ég verð ÖRUGGLEGA ekki upptekin;-) en vinkonur mínar tvær hérna gætu verið það dkjlsdfo.... þannig að endilega látið vita ef einhver hefur áhuga á fyrrnefndri hugmynd:-) takk takk
En annars er ég bara hress.. er að borða síðbúinn kvöldverð sem samanstendur af léttpoppi og maxara! mjög næringarríkur og góður kvöldverður.. jömmííí... mér var nebbla boðið í kaffi í dag til Dísu vinkonu og það kemur mar nú ekki að tómum kofanum,, át ég þar mikinn og hafði því ekki lyst á kvöldmat á kvöldmatartímanum, en það er tíminn svona kva skal segja milli 6 og 8 sirka en þá borða flestir sinn kvöldmat! en ekki ég í dag og vitna ég í fyrrnefnda útskýringu á því... en jæja nóg af bulli í bili....
Hafið það gott dúllurnar mína og gangi ykkur vel að sigrast á mánudagspúkanum... hann getur verið erfiður viðureignar... Hlakka til að lesa fullt af nýju bloggi á morgun... eitthvað verður mar jú að hafa fyrir stafni í vinnunni og eitthvað til að hlakka til ekki satt???????
Góða nótt dúllurnar mínar (og þá er ég ekki að meina eins dúllur eins og ég er að hekla núna, sem bæ ðe vei eru mjög sætar og smekklega samansettar!! og það er ég að hafa eftir öðrum nóta bene....)
leiter kv.. Stína
|
posted by Kristin @
10:03 e.h.
|
18.4.04  |
heelllúúú..
stínan hérna, bara vildi kommenta á hvað mér finnst það skemmtilegt að aðrir en við þrjár séum farnar að kommenta í þar til gerðan kommenta dálk, sem eins og slíkur ætti auðvitað að gera, hentar einstaklega vel til að skilja eftir allskyns komment og aðfinnslur! náttlega bæði góðar og slæmar... En allt gott að frétta.. nema bara að ekkert er að gerast í mínu lífi... hvorki gott né slæmt.. dísess orðið pínu pirrandi sem leiðir það af sér óhjákvæmilega að ég verð bæði pirruð og bitur.. sem getur haft það í för með sér að ég næ ekki að samgleðjast þeim vinkonum mínu sem svífa nú um á rósrauðu skýi. Mér finnst bara eins og ég sé ein niðri á jörðinni og það rigni úr öllum þessum skýjum sem allir eru að svífa á þarna uppi....!!!! dísesss kræst.. náði ég að vera nokkuð heimspekileg þarna... endilega kommentið á það iff jú vill:-)
en gaman að þessu öllu.. ég hætti núna í vinnunni 5. maí í staðinn fyrir 7. maí jei jei jei...bara 14 dagar ettir... en ok ok ok ég skal hætta að tala um þetta ég veit að ég er orðin eins og biluð plata.. en jæja allir! ég ætla að fara að reyna að standa undir nafni sem Bjartstína því að ef að þetta heldur áfram þarf ég að fara að skipta um nafn,,, mér datt í hug svartstína en hvað finnst ykkur???? allar uppástungur vel þegnar;-) Góða nóttt dúllurnar mínar..
leiter bjartstínan..
|
posted by Kristin @
11:09 e.h.
|
15.4.04  |
Ég held það þurfi ekki frekari sannanna við, ég er geðsjúklingur. Aftur lagði ég af stað niður í Laugar löngu áður en haninn vaknaði. Frekari experimentasjónir með púlsgræjuna voru framkvæmdar og þykir mér þetta nokk sniðugur gripur sem ég hef eignað mér. Það vill svo skemmtilega til að það fylgdi leiðbeiningabæklingu með mínum sem er nokkuð aðgengilegur, svo er gripurinn líka svo tæknilegur að hann skynjar ef maður veit ekki hvað á að gera næst og leiðir mann áfram.
En ástæðan fyrir árrisinu í morgun er sú að von er á guðdótturinni og móður hennar í bæinn seinnipartinn og má búast við að ég þurfi e-ð að hafa ofan af fyrir þeim svo lítill tími gefst til svitamyndunar þá.
Sennilega best að sýna fram á smá vinnuframlag, kv. Bergþóra
|
posted by Kristin @
11:39 f.h.
|
14.4.04  |
Svo hefði ég gaman af því ef fólk sem á hér leið um nýtti sér kommentakerfið sem ég svitnaði við að setja inn, mér líður eins og ég sé ein í Hvergilandi á þessu alneti.
Kv.B
|
posted by Kristin @
3:00 e.h.
|
13.4.04  |
Best að byrja á því að óska Sonju innilega til hamingju með að vera orðin föðursystir, Sonja, TIL HAMINGJU.
Klukkan var nú ekki nema 05:30 þegar 3 vekjaraklukkur fóru af stað hjá mér í morgun, ég vall út úr rúminu og niður í Laugar. Hvað er betra klukkan sex að morgni en hlaupabretti undir fótunum og Slipknot í eyrunum. Það er ekki margt skal ég segja ykkur. Nema þá helst ef Ropejógagaurinn í rauðu peysunni mætir snemma á æfingu, sem hann btw. gerði í morgun svo so far er þessi dagur fullkominn. Hann var reyndar ekki í rauðu peysunni en honum fyrirgefst það nú alveg.
Ég var að prófa "nýja" púlsmælinn "minn" í morgun en mér tókst loksins að kría mælinn út úr bróður mínum um páskana. Það er í raun skammarlegt hvað það hefur tekið mig langan tíma, ég held að ég sé að missa takið á honum. Allavega hafa málin snúist við, hann er farinn að hafa allt af mér, en eins og gefur að skilja á það að vera öfugt, ég er jú yngst. Þetta er svona þrusu sniðug græja, segir manni allt það helsta og pípir svo bara ef maður er eitthvað kominn yfir hættumörk.
Þá var það ekki fleira, Sonja, enn og aftur til hamingju með prinsinn
ýkt klístraðar stuðkveðjur af Lundinum, Bergþóra verkstjóri á verkjasviði
|
posted by Kristin @
12:47 e.h.
|
 |
Jjjjiiiiiiibbbbbííííi, húrra húrra húrra. ÉG er orðin alvöru FRÆNKA !!!!! Í nótt fæddist litli sæti frændi minn sem þýðir að bróðir minn er orðinn pabbi........VVVááááááááááá . Fyrsta ömmubarnið í fjölskyldunni er semsagt mætt á svæðið og veldur svona stormandi lukku hjá öllum. Sögur segja að Krúsi jr. ku vera mjög líkur föður sínum....það hefði nú bara verið frábært ef hann kríli litli hefði getað hugsað sér að fæðast einum degi fyrr þá hefði náð að berja hann augum......í augnablikinu bíð ég spennt eftir myndum sem Stella systir ætlar að senda mér :)
Over and out i bili , Sonja frænka :)
|
posted by Kristin @
10:16 f.h.
|
 |
Páskavembill skrifar:
Getur verið að í æðiskasti mínu við að koma frá mér píslarsögunni að mér hafið láðst að óska landsmönnum, já eða þeim þremur sem lesa þetta, gleðilegra páska. Það er þá skjalfest hér með.
En nú eru páskarnir að renna sitt skeið og dásamlegur hversdagsleikinn að taka við aftur. Ég sé fram á að láta af viðstöðulausu áti og flytja lögheimili mitt niður í Laugar. Ég verð allavega þar bæði fyrir og eftir vinnu og í anda þess á milli. Svo ef einhver hefur áhuga á að eiga eitthvað samneyti við mig, þá verð ég þar. Það virðist nebblega sem góður ásetningur um grænmetisát og próteininntöku hafi fokið út í veður og vind einhversstaðar á leiðinni.
Ég virðist vera í svona hrottalegu formi að ég fékk ekki einn einasta streng eftir maraþonið í gær. Ég bjóst nú allavega við nokkuð góðum kúlurassi þar sem seinasti kílómeterinn er jú ansi mikið upp í móti, en nei, það er bara eins og ég hafi legið í baði og haft það huggulegt.
En þá bið ég bara að heilsa í bili, best að eiga smá kvaletítæm með foreldrunum áður en brunað verður í borgina, Venlige hilsen, Bergþóra bigbelly
|
posted by Kristin @
11:03 f.h.
|
12.4.04  |
Píslarsaga Bergþóru
Stundum fæ ég hugmyndir, sumar góðar, aðrar slæmar. Ég veit ekki í hvorn flokkinn páskahugmyndin mín myndi falla. Hún var semsagt sú að ganga frá Akureyri fram í Kristnes, tábrotin og þunn eftir ósköp lítinn nætursvefn. Þess ber að geta að þetta eru hátt í 12 km.
Nú, ég legg af stað og er komin ca. 50 metra þegar ég er orðin sársvöng og blaut í tærnar, en ég vil minnast á það hér að mér finnst fátt ógeðslegra en að vera blaut í tærnar. Gott hefði líka verið ef ég hefði lært af reynslu Áka í Esjugöngunni um daginn, en það er einmitt að leggja ekki af stað í langferð áður en þynnkuskitan hefur skilað sér.
Þá er ég komin að kirkjugarðinum, ca 11 km eftir af hardcore göngu. Mæti ég þá ekki föðursystur minni sem stoppar og finnst nú upplagt að ég grípi með mér pokaskratta sem innihélt 2 afmælisgjafir handa systkinabörnum mínum og umslög. Ég var svo rasandi bit á þessari bón að ég auðvitað tók pokann og hélt áfram göngunni. Þegar ég fór að hugsa betur sá ég auðvitað hversu asnalegt þetta var þar sem seníla föðursystirin var á leið í heimsókn til okkar seinna þennan sama dag. En ég hafði þá eitthvað að gera á leiðinni, ég gat pirrast, þar sem ég hafði ekki einusinni útvarp og hafði ekkert nema eigin hugsanir til að gleðjast yfir. Það vill mér til happs að ég hef endalaust gaman að sjálfri mér.
Mér þótti það nokkuð táknrænt að mér var í þrígang boðið far og í þrígang neitaði ég. Sem betur fer voru það gæsir sem görguðu á meðan en ekki hani sem galaði. Að öðru leiti sóttist mér ferðin vel, veðrið var með eindæmum gott og mér tókst held ég að sólbrenna. Það fólk sem keyrði framhjá gerði sér far um að ausa úr pollunum yfir mig og hafði ég nú endalaust gaman af því, eða þannig. Einn morðóður á stórum jeppa keyrði meira að segja svo nálægt mér að nú vantar á mig vinstri hliðina, rétt vona bara að það komi ekki að sök.
Ég lauk þessu þrekvirki á 2 klukkutímum sléttum og virðist ekki ætla að bera skaða af. Táin hangir enn á og ég fékk engar blöðrur. Næst fer ég þessa leið með kross á bakinu.
Svo mörg voru þau orð, guð veri með ykkur, Bergþóra
|
posted by Kristin @
8:46 e.h.
|
11.4.04  |
Hellúúú...
er komin norður yfir heiðar og verð að segja... ó mæ god.... ekki slæmt!!! Rólegheit og næs... er bara að éta og meira að éta mar er nú líka eitthvað að reyna að hreyfa sig! fór í ansi góðann göngutúr í gær ég og mútta sko... og svo fór ég á Hvanndalsbræður í gær líka... Mikil skemmtun sem það var.. þeir eru bara fyndnir og skemmtilegir... mæli með þeim bræðrum til hinna ýmsu tækifæra...
Én jæja er að fara í mat og skreppa aðeins til ömmu gömlu og fara svo í kaffi örugglega einhversstaðar...
Leiter dúllurnar mínar og gleðilega páska...
PAPAR annars á morgun... MIKIL tilhlökkun og mikil stemming jei jei jei.....
Leiter bjartstínan....
|
posted by Kristin @
4:18 e.h.
|
9.4.04  |
Hellúúúú gott fólk
Jæja Akureyri here i come!!! :)
Alltaf gaman að skreppa í sveitina í dekrið til múttu......og svo spillir nú ekki fyrir að krakkinn þeirra Markúsar bróður og Önnu ætlar nú bara að bíða með að fæðast þangað til að ég verð mætt á svæðið ;) skynsamur krakki þetta.
Pæliði í því...ég vann páskaegg í vinnunni í dag nr 5 frá NS, en þar sem ég er starfsmaður þá mátti ég ekki eiga það !!! Í fyrsta skiptið sem ég vinn eitthvað þá má ég ekki eiga það vegna þess að ég er ekki nógu geðveik....hummmm.....
Annars er ekkert títt nema hvað ég held að ég sé að gera Bebbu og Stínu nokk brjálaðar með mínu Sólheimabrosi sem virðist vera vera fast á andlitinu á mér þessa dagana. Ástæðan fyrir þessu svo mjög kjánalegu brosi er norðanpiltur nokkur sem hefur verið að afsanna allar mínar kenningar sem ég hafði um kalla !!
Nú er farið að styttast í sumarið og rétti tíminn til að fara plana kajaknámskeið, river rafting, Metallica tónleika og e-ð fleira skemmtilegt......vvvvííííííííííí þetta verður bara gaman.
Gleðilega páska og borðið fullt af súkkulaði, túrilú Sonja
|
posted by Kristin @
1:13 e.h.
|
6.4.04  |
Síðar sama dag..
er enn í vinnunni! kræst.. ætlar þessi dagur engan endi að taka! ekki einu sinni emmessenn til að stytta sér stundir;-/ en ég er nú samt í matarpásunni minni! hálftími sem ég hef til að leika mér í tölvunni,,, en ég myndi náttla auðvitað ALDREI og þá er ég að meina ALDREI vera að væbblast í tölvu eða að skrá mig á veraldarvefinn án þess að vera í lögbundinni pásu, matarhléi eða frítíma af öðrum toga.... öhömmm..
En lítið hefur gerst frá því ég kvittaði síðast, kjúlli í matinn, jömmí.. bara góður! en annars varla nokkuð markvert..
Leiter
bjartstínan:-)
|
posted by Kristin @
12:48 e.h.
|
2.4.04  |
Jæja! er ekki kominn tími á eitthvað nýtt hérna inn??? ég bara spyr? Eitthvað djúsí slúður! hver er að sofa hjá hverjum?? hver er ólétt?? hver vaknaði hjá .. og so videre...
En gaman væri nú ef einhver hefur verið látinn hlaupa 1. apríl, að hann kannski þá sjálfur, sem slíkur, segi frá því í nokkrum orðum. Eigi meira en eitthundrað orð! sjötta hvert orð í þriðju hverri línu skal vera 1. apríl! sá sem á bestu frásögnina fær að launum páskaegg frá Nóa síríus! jei... vegleg verðlaun í boði og allir að byrja að semja!!
En jæja! bara þrír vinnudagar í viðbót og svo tekur við ljúfa páskafrí... ummmm... ekki slæmt! Ég er SVO komin í þörf fyrir smá frí!
En helgin verður bara róleg að ég held.. klipping í kvöld, gettu betur, söngvakeppni framhaldsskólanna annað kvöld, og sonna bara rólegheit og næs..
Það verður nebbla örugglega djammað feitt um næstu helgi! því að hinir alræmdu PAPAR leika fyrir dansi í sjálfstæðishúsi Akureyringa (öðru nafni Sjallanum) á laugardagskvöldið og munu þeir án efa trylla lýðinn eins og þeim einum er lagið! Bara stuð stuð stuð....
En gott fólk.. gaman að þessu.. best að reyna að gera eitthvað til að vinna fyrir þessum krónum sem ég fæ....
Leiter mæ frends.. gangið hægt um ... sýnið varúð þegar kemur að .. passið ykkur á ... þið vitið..
EEEEENNNN njótið samt lífsins.. það er alltof stutt til að passa sig á öllu... jæja látum þetta verða viskuorð þessa föstudags 2.apríl 2004..
Bjartstínan;---)
|
posted by Kristin @
10:42 f.h.
|
 |
Helllúúúú
Ég held að það sé nú algjört möst að koma inn myndum frá því þegar við klifum Esjuna forðum daga......Bebba tölvunölli, komdu þér aftur í gírinn og finndu út hvernig við getum sett skemmtilegar myndir á þetta frábæra blogg okkar :)
Over and out, Skonjan
|
posted by Kristin @
9:43 f.h.
|
26.3.04  |
Gleymist nú alltaf að láta þess getið að ég heiti Bergþóra og kann á tölvur
|
posted by Kristin @
8:56 f.h.
|
25.3.04  |
Fékk þokkalegt sjokk í morgun þegar ég opnaði bloggið og fína kommentakerfið var horfið. Ég dó þó ekki ráðalaus, fór í aðra tölvu og viti menn, það var þar. Svo það var í raun tölvudraslið sem ég var í sem var klikkað en ekki ég, mikill léttir þar. Ég vona bara að þið sjáið þetta líka og kommentið endilega, látið vita ef það kemur ekki, ég verð þá að endurskoða þær hugmyndir að ég sé tölvusnillingur :)
|
posted by Kristin @
8:55 f.h.
|
 |
Ég vil bara nota tækifærið og ská mig hér með í thongsundið mikla í Skorradalsvatni næstkomandi sumar og skora á alla sem thong geta valdið að gera slíkt hið sama. Spurning um að gera sundið meira spennandi með því að efna til keppni um frumlegasta, efnisminnsta, mest blikkandi nú eða minnst kynæsandi thonginn???? I´m game og er þegar farin að hanna, sníða og sauma minn. Verið nú ekki minni menn stelpur, skráið ykkur og þið sjáið ekki eftir að hafa tekið þátt í eftirminnilegasta atburði sumarsins.
P.S. plís fari einhver að kenna mér á þessa broskalla, ég er að verða mér til skammar
|
posted by Kristin @
9:49 e.h.
|
24.3.04  |
Gúd dei..
Ég vil bara þakka hlý orð í minn garð! og það bara verður að viðurkennast að ég stóð mig bara nokkuð vel þarna sem peppari... Af orðum Skonju mætti samt halda að ég hafi mikla reynslu í þessum svokölluðu ástarmálum , sem er nokkuð mikill misskilningur.. en Hún stóð sig bara sjálf eins og hetja stelpan.. En svona fyrir mína parta verður að viðurkennast að ég stóð eins og klettur við hliðina á henni, bæði í Nammilandi og við ísbarinn í Snælandi
Það má alltaf treysta á Stínuna þegar kemur að því að feta hina erfiðu stíga nammilandsins, en fyrir leikmenn getur þar verið erfitt að rata!!!!! Endilega hafið samband ef ykkur vantar leiðsögumenn...
Þetta nammiát hins vegar (eins og þessir sem lesa þetta hvort eð er vita) leiddi af sér mikla magaverki og í heildina bara tóm leiðindi... en vell... það gleymist fljótt! Ég var allavegana orðin nokkuð spræk í átinu strax daginn eftir og kláraði þá úr pokanum í þynnkunni......
En ég fór aðeins á djammið á lau! fyrst á Ara í Ögri og svo döbbliners það var bara gaman.. ég stefni að djammi attur,, verrí sún!!!!!!..
En jæja gömlurnar mínar sem eru að lesa þetta
leiter... Bjartstínan
|
posted by Kristin @
2:39 e.h.
|
16.3.04  |
Góðan daginn góðir hálsar....og slæmir !
Undur og stórmerki áttu sér stað um síðustu helgi þegar Sonja litla lipurtá fór út úr húsi með öðrum en þeim 6 einstaklingum sem hún umgengst alltaf! Þessi merkilegi atburður olli að sjálfsögðu töluverðri streitu eins og gefur að skilja og þakkar Sonja hinum stórsnjalla einka-deiting þjálfara og ráðgjafa fyrir góðan stuðning og ráð. Húrra fyrir Stínu stuð !!!!! Hún lengi lifi....húrra ....húrra....húrraaaaaaaa. :)
Varðandi bandabrókasundið þá er einungis einn búinn að skrá sig MÍ :) og ein fyrirspurn borist...kommaaa svo stelpur, eruð þið kellingar eða ekki ????
Sonja sækó
|
posted by Kristin @
1:38 e.h.
|
 |
Það er nú varla að maður þori að blogga á eftir bloggkarlasnillanum hér á undan, ég kann þetta nebblega ekki en markmiðið er að læra það. Það er allavega á 7 ára planinu. En mér datt bara í hug að minnast á það hér hvursu himinsæl ég er í nýju vinnunni minni, ég er bara endalaust ánægð. Ekki svo að skilja að hinn vinnustaðurinn minn hafi sökkað, þessi er bara enn betri.
Það bólar enn ekkert á því að fleiri en sambýlingarnir láti ljós sitt skína hér, vonandi er vona á bragarbót í þeim efnum, þangað til, yfir og út, verkjastjórinn
|
posted by Kristin @
12:59 e.h.
|
11.3.04  |
hellú stínan er snillingur
Er að prófa mig áfram í að blogga með því að nota smælíkalla tú medafor! iff jú nó vatt æ mín
En allavegana! það er komin miðvikudagur! ekki slæmt! bara tveir vinnudagar fram að helgi.
fór í badminton í gær! tvíliðaleik með Camillu og Finn og svo Hjördísi sem er aðstoð sjúkraþjálfara! mjög gaman en augljóst að stínan er ekki í mikilli æfingu! einhverjir strengir að brjótast fram eftir því sem er að líða á daginn...
Jæja er að hugsa um að pósta og pöblisha og athuga hvort eitthvað af þessum brosköllum sjáist....
Leiter.. Bjartstína
 
|
posted by Kristin @
2:45 e.h.
|
10.3.04  |
Hæ gæ

|
posted by Kristin @
2:38 e.h.
|
 |
Hádilí dúdilí...
Margt og merkilegt hefur gerst frá því að ég skrifaði síðast og ber það helst að nefna veikindi, hokkíleik, útdrátt í rauðvínspotti og.. öhömmm.. það var kannski bara ekkert meira merkilegt.. ó vell en sem sé í stuttu máli= veikindin voru slæm en eru góð! Hokkíleikurinn var góður! karlmannlegur með tilheyrandi blóðslettum arrrggg... og rauðvínspotturinn gekk út! EKKI til mín... grenj grenj.. en Auður og Linda Aðal fengu sín hverja fjórar flöskurnar af veigum... Gott hjá þeim barasta segi ég! ekki vitundar öfundsjúk....
Gott hjá þér Sonja! kanna nýjar lendur! það er þá hægt að strika Skagafjörðinn út af kortinu og einbeita sér að nýjum miðum (ekki svo að skilja að ég hafi haft sérstakar væntingar varðandi Skagafjörðinn, en....).
Jæja við hérna í vinnunni erum að fara á 5stelpur.com á fös! mikil tilhlökkun og margar spurningar sem dynja á undirritaðri! hvað er um að vera í skemmtanalífinu almennt! er enn í tísku að vera með vængjagreiðslu! hvar er hægt að dansa og so videre... hvernig í ósköpunum er hægt að svara þessum spurningaflaumi svo vel sé? Þær verða bara að sjá það af eigin raun.. rífa út sparidressið og lett gó a little.. En annars held ég að þetta gæti verið mjög skemmtileg upplifun.. ég hlakka bara til;--)
Jæja kæru lesendur... ég bið ykkur vel að lifa og kveð með trega og söknuði..
Með virðingu og vegsemd
Bjartstína
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
8.3.04  |
Ich binn der Blogg Meister :)
Auf wieder sehen, Sonja der Blogg Meister
|
posted by Kristin @
3:07 e.h.
|
4.3.04  |
Guten tag alle zusammen !
Best að fara æfa mig í þýskunni svo ég geti nú e-ð spjallað við hann Klaus minn....hehehehhe. Slæmar fréttir mínir kæru einhleypu vinir, það er ekkert nothæft að hafa úr skagafjörden , nein dass sind alle sehr hässliche männer dort in dem Fjord.
Annars er ich með eine kenningu, hún er sú að rauntíminn líður veil schneller hérna í Reykjavík heldur en á Akureyri. ég held að ef ég hefði verið á Akureyri allan tímann sem ég er búinn að vera í Reykjavík dann were es noch october aber nich märz wie in Reykjavík. Tíminn líður so schnell að það er bara kominn miðvikudagur og næstum því fimmtudagur en það er svo rosalega kurts síðan það var föstudagur og ég auf dem weg nach Akureyri mit dem Flugzeug. Ókei boring.............
Lifið heil og munið að lífið er dásamlegt :) Songó í bongó blíðu
p.s. munið eftir íshokkíleiknum á laugardaginn og Hugarafli á Kaffi r-vík milli kl 13-16 á laugdag og svo er planið að tölta upp á Esjuna um helgina og .......
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
3.3.04  |
[ mán. mar. 01, 09:30:51 AM | Kristin Gudmundsdottir | edit ]
Hellú..
Jæja það er komin mars og sonna... merkilegt hvað tíminn líður hratt! dónt gett mí vrong! það er bara í besta lagi! þeim mun styttra er í sumarfrí og fleira skemmtilegt;-) jei jei jei... En ég semsé bregðaði mér norður yfir heiðar um helgina! það var bara frábært;-) Hitta familíuna og svo hitti ég hana Eddu vinkonu mína sem ég hef ekki hitt lengi en sakna mikið;-) Það var bara gaman hjá okkur! mikið drukkið og sungið! Við höfðum það hátt að aumingja konan á neðri hæðinni hjá Valdísi kvartaði undan okkur! En ég meina.. það er ekki eins og Valdís eigi afmæli á hverju ári! mjög mikilvægt að halda almenninlega upp á það á 4 ára fresti:-)
En je je.. Undirrituð er búin að koma af stað rauðvínspotti hérna í vinnunni, hún er búin að auglýsa hann mikið og leggja mikla áherslu á að allir komi nú með flösku af rauðvíni, hvítvíni eða öðru léttu víni (fer bara eftir smekk viðkomandi;-)) í vinnuna Í DAG!!! 1. mars.. En ekki nóg með það! fyrrnefnd undirrituð gleymdi svo barasta rauðvínsflöskunni sem hún var búin að kaupa í búrinu í Núpó, fyrir norðan sko! hafið þið heyrt annað eins! Þvílíkt og annað eins.. Undirrituð lummaðist svo lúpuleg í vinnuna í morgun (flöskulaus með öllu).. en var mjög fegin þegar hún komst að raun um að fleiri höfðu gleymt flösku og aðrir voru veikir! ekki svo að skilja að hún sé fegin því að fólk sé veikt.. en þið vitið.. jæja þetta var nú skemmtileg frásögn og margir örugglega orðnir spenntir að vita hvert rauðvínspotturinn fer svo að lokum.. En það verður að koma í ljós.. segi ykkur frá því um leið og úrslit liggja fyrir..
En Bebba er semsé að byrja í nýrri vinnu í dag.. spennandi að heyra frá henni í kvöld.. Gott ef hún var ekki pínulítið stressuð í morgun þegar hún gekk út um dyrnar.. en vonandi gengur bara allt vel! ég er reyndar viss um að það gerir það;-) En bebbí ef þú ert að lesa þetta bara gúd lökk...
Skonja hvenær rennur umsóknarfresturinn út varðandi bandabrókar-frelsis-sundið?? Eru eru einhver viðkvæði við því að skrá sig en skipta svo um skoðun.. hvernig virkar þetta?
Bestu kveðjur frá Bjartstínu...;-)
|
posted by Kristin @
10:43 f.h.
|
1.3.04  |
Hellú..
Jæja það er komin mars og sonna... merkilegt hvað tíminn líður hratt! dónt gett mí vrong! það er bara í besta lagi! þeim mun styttra er í sumarfrí og fleira skemmtilegt;-) jei jei jei... En ég semsé bregðaði mér norður yfir heiðar um helgina! það var bara frábært;-) Hitta familíuna og svo hitti ég hana Eddu vinkonu mína sem ég hef ekki hitt lengi en sakna mikið;-) Það var bara gaman hjá okkur! mikið drukkið og sungið! Við höfðum það hátt að aumingja konan á neðri hæðinni hjá Valdísi kvartaði undan okkur! En ég meina.. það er ekki eins og Valdís eigi afmæli á hverju ári! mjög mikilvægt að halda almenninlega upp á það á 4 ára fresti:-)
En je je.. Undirrituð er búin að koma af stað rauðvínspotti hérna í vinnunni, hún er búin að auglýsa hann mikið og leggja mikla áherslu á að allir komi nú með flösku af rauðvíni, hvítvíni eða öðru léttu víni (fer bara eftir smekk viðkomandi;-)) í vinnuna Í DAG!!! 1. mars.. En ekki nóg með það! fyrrnefnd undirrituð gleymdi svo barasta rauðvínsflöskunni sem hún var búin að kaupa í búrinu í Núpó, fyrir norðan sko! hafið þið heyrt annað eins! Þvílíkt og annað eins.. Undirrituð lummaðist svo lúpuleg í vinnuna í morgun (flöskulaus með öllu).. en var mjög fegin þegar hún komst að raun um að fleiri höfðu gleymt flösku og aðrir voru veikir! ekki svo að skilja að hún sé fegin því að fólk sé veikt.. en þið vitið.. jæja þetta var nú skemmtileg frásögn og margir örugglega orðnir spenntir að vita hvert rauðvínspotturinn fer svo að lokum.. En það verður að koma í ljós.. segi ykkur frá því um leið og úrslit liggja fyrir..
En Bebba er semsé að byrja í nýrri vinnu í dag.. spennandi að heyra frá henni í kvöld.. Gott ef hún var ekki pínulítið stressuð í morgun þegar hún gekk út um dyrnar.. en vonandi gengur bara allt vel! ég er reyndar viss um að það gerir það;-) En bebbí ef þú ert að lesa þetta bara gúd lökk...
Skonja hvenær rennur umsóknarfresturinn út varðandi bandabrókar-frelsis-sundið?? Eru eru einhver viðkvæði við því að skrá sig en skipta svo um skoðun.. hvernig virkar þetta?
Bestu kveðjur frá Bjartstínu...;-)
|
posted by Kristin @
9:30 f.h.
|
 |
Heil og sæl góðir hálsar hvar sem þið eruð í heiminum.
Að vel ígrunduðu máli þá er ég að hugsa um að taka þeirri áskorun um að bandabrókssundið góða verði gert að árlegum viðburði :) Sundið mun kallast bandabróks-frelsis-sundið og verður á hverju ári í kringum 19.júli helst í Skorradal en önnur ferskvötn koma samt til greina. Öllum kellingum er velkomið að taka þátt, eina skilyrðið er að sjálfsögðu að synda í bandabrók!!!! Þátttakendur ákveða sjálfir hvort þeir fá sér frostlög, en tekið skal fram að mótshaldarar taka enga ábyrgð á þátttakendum. Skráning er hafin.......
Lifið er dásamlegt, Sonja
|
posted by Kristin @
4:23 e.h.
|
29.2.04  |
.........
Þá er enn einn föstudagurinn runninn upp ljós og fagur....víííí og við aðal-háteigsvegsgellurnar á leiðinni norður yfir heiðar :) í dekur til mömmu, sumir reyndar aðeins götóttari og fölari en síðast (greyjið hún Bebbí). Ég ætlaði nú bara að nota tækifærið og auglýsa eftir skvísum til að koma með á íshokkíleik sem verður laugardaginn 6. mars kl:18.30 í Laugardalnum. Þar gefur að líta margt hreystimennið og karlmennskan verður alveg í TOPPI.....haba haba :p get alveg lofað því. Hvað er heitara en sveittir karlmenn að berja hvern annan með kylfum !?! það verður hreinlega ekki heitara.....þannig að ...kommmma sooooo
Annars er nú allt meinhægt að gerast, stefni á skagfirska sveiflu á lau kvöldið og læt ykkur vita síðar hvort það er eitthvað nothæft að finna í skagenfjörðen.....og svo þarf ég náttúrulega að testa þennan fína búnað sem ég keypti á einu besta sjopping spríi sem ég hef lent í lengi...tékka á því hvort hann er íshokkí-kulda-þolinn. Ég hef aldrei á ævinni lent í því áður að geta ekki haft stjórn á peningaeyðslunni minni.....en djöfull er helvíti gott að versla og eyða peningum....ætli það sé ekki eitthvað tengt því þegar tilfinningar manns eru eins og góður rússíbani....lifið er dásamlegt :)......dauði og djöfull :(...lífið er dásamlegt :)....dauði og djöfull:(......o.s.frv.
best að hætta öllu bulli, over and out. Auf wieder sehen, Sonja
p.s. þar sem við erum að auglýsa eftir einhleypum mönnum á þessari síðu er þá ekki bara nauðsynlegt að einhverjir aðrir en við kellingarnar séum að lesa þetta...hummmm....good point.
|
posted by Kristin @
2:17 e.h.
|
27.2.04  |
Grítings örþ-língs...
"Þessi lilja er mín lifandi trú, hún er ljós mitt...." Jæks.. þetta lag er á fullu í hausnum á mér! Hefur einhver heyrt á það minnst? svo ekki sé meira nefnt? En ég er semsé á Vitatorgi þar sem ég var frammi í sal og við vorum að syngja í hvorki meira né minna en .. klukkutíma! Smá orkusuga! ekki síst þegar ekki er sungið annað en sálmar og eldgömul kvæði um ástfangið fólk! ÞOLI EKKI ÁSTFANGIÐ FÓLK!!! heheh.. bara djók.. ég er bara öfundsjúk.. (og það ekki lítið!) en minn tími mun koma;-) vonandi allavegana og ef einhver einhleypingur les þetta (karlmaður þ.e) ENDILEGA hafðu samband;---) hehe..
En að öðru.. Ég er semsé að hugsa um að bregða mér norður yfir heiðar og kíkja aðeins á eyrina um helgina! hef heyrt að þar geti verið gaman að skemmta sér og fá sér kannski aðeins í aðra stórutána... En um næstu helgi verður kominn mánuður frá því að ég fór síðast á djammið!!! pælið í því... dugleg er hún! hún stína:-) bíðiði aðeins.. ætla aðeins að klappa mér á bakið.............................. já ég er komin aftur! en að öllu spaugi gömnuðu.. þá býst ég við rífandi stemmingu um helgina og endilega allir sem vettlingi geta valdið..--->> Smellið á ykkur danstúttunum og drífið ykkur út á lífið!!!!!!!!!
En jæja er að hugsa um að segja þetta gott þar sem andinn er ekki alveg yfir mér! hann var hérna áðan en svo skrapp hann fram.. mér sýndist hann fara inn í kaffistofu, en ég er ekki alveg viss... tromm tromm tromm.. ok slæmur ...;-/
En hafið það sem allra best og meira bara síðar!!!
Kveðja frá Bjart-Stínu..
p.s endilega blogga... blogga, blogga, blogga...
|
posted by Kristin @
11:28 f.h.
|
25.2.04  |
Tek undir með síðasta bjartsýnis-ræðu-skrifara ......húrra húrra það er kominn föstudagur . Því miður virðist ekki vera komin nein endalok á þurrktímann minn :( , en minn tími mun koma. Sakna Kalla Bergs alveg rosalega en minningin frá síðustu fitumælingu styrkir mig í því að halda mér frá áfengisbölinu :P
bestu kveður og lifið heil, kveðja Skonjan
|
posted by Kristin @
2:20 e.h.
|
20.2.04  |
Jæja jæja jæja...
Merk tímamót eiga nú sér stað.. en undirrituð hefur ekki hripað niður á bloggið síðan miðsumars á síðasta ári.. En þetta gengur ekki lengur og eftir nána umhugsun hef hún (undirrituð þ.e) komist að því að þetta er kjörinn staður til að tjá sig og sínar innstu.. en dónt vorrí þetta verður ekkert alltof persónulegt..
En hér með viðurkennist að þó að þú (Sonja) hafir réttilega unnið þér inn 3x50 (vell donn bæ ðe vei) þá hefur þú ekki, þá er ég að meina sonja sem slík, ekki fengið afhentar títt umræddar 3x50 kr. !! sett verður nefnd í málið og hún mun yfirfara þau gögn sem til eru, hlusta á vitnisburð þeirra sem voru á staðnum, til dæmis þegar bandabrókarsundið góða átti sér stað í skorradalsvatni;-) Þeir sem staddir voru í kringlunni þegar rúllustigahlaupið fór fram verða yfirheyrðir (en það verður lengi í minnum haft fyrir ótrúlega þrautseigju, úthald og þor.. )
en fyrir hvað var þriðji 3x50 kallinn? mér er spurn.. var það ormaátið?
En ekki nóg með það heldur skuldar hún (undirrituð) þér líka maxara.. sem er ófyrirgefanlegt! ætlaði að borga þér í gær! en stína lata með lítinn bata hefur ekki nennt út í búð... Gerð verður bragabót á því í dag... og jafnvel verða komnir á þetta vextir og skonjan fær annan maxara í sárabætur fyrir allan þann tilfinnanlega skaða sem hún gæti hafa hlotið..
En Skonja ég held bara að það sé nokkuð til í þessari kenningu hjá þér.. en tel þó að þetta sé persónubundið. Undirrituð hefur til dæmis aldrei og þá er ég að meina aldrei! farið og synt í köldu vatni á bandabrók.. né heldur hlaupið upp rúllustiga í Kringlunni af því að henni var lofaður fimmtíukall (sem að sumir ættu að vita af biturri reynslu að verður aldrei borgaður þrátt fyrir fögur loforð...) og hefur undirrituð ÞÓ verið tiltölulega lengur síngul en þú!!!!!!!
En málið er bara að reyna að lappa upp á gamla sálartetrið eftir langan og dimman vetur og njóta þess að nú fer að styttast í sumar og sól! Leiðir til að ná því markmiði gætu til dæmis verið að fara að sækja ýmsa íþróttaviðburði, fara á kaffihús, njóta lífsins og gera asnalega hluti og þá kemur þessi eini sanni (svífandi yfir ísinn, sem dæmi) og sópar þér af fótunum (í lauslegri þýðingu) og ekki reyna að telja mér trú um annað...!!!!!!!!!!!!!!!
En það er föstudagur í dag og síðasta helgin í þurrki! jei... hlít að meika það.. annars er ég í djúpum;-/ Það verður bara ennþá meira gaman næstu helgi;----) en dúllurnar mínar sem lesið þetta! hafið það gott og njótið þess að vera til.. lífið er of stutt til að sitja og láta það líða hjá.. (eikkað solleiðis...;-/)
En bæjó í bili
kv. Stína bjartsýna
|
posted by Kristin @
10:36 f.h.
|
 |
Well o well, heilir og sælir lesendur bloggsins þ.e. Stína stuð og Bebba bali......
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það geti hreinlega verið að maður verður kú kú í hausnum á því að vera einhleypur !?! Síðan ég varð einhleyp fyrir nokkrum mánuðum síðan hef ég staðið sjálfa mig að því að vera gera hreint út sagt furðulegustu hluti. Mínu máli til stuðnings hef ég unnið mér inn 3x 50 kall á þessum tíma. Þar ber hæst sundið góða í Skorradalsvatni, reyndar ber að taka fram að þar var áfengi haft um hönd, nú svo hljóp ég upp rúllustiga kvöld eitt í Kringlunni sem var að fara niður ( ég komst næstum því ekki alla leið upp....svettí harrí) nú og svo át ég þennan próteinríka mat sem ég eldaði mér um daginn sem leit út eins og æla með ormum í. Upp á síðkastið hef ég verið að gera enn furðulegri hluti án þess að hafa neinn peningalegan ávinning af eins og t.d. að bíta mann og annann, slá þjálfara á rassinn (not my finest moment) og drekka kaffi.
Getur verið að einhleypt fólk hafi meiri orku afgangs sem kemur fram í þessari mynd? Ég til dæmis leiddi aldrei hugann að því á meðan ég var í sambandi hversu mikilvæg heimaleikfimin væri fyrir geðheilsuna. Mín kenning er sú að skortur á heimaleikfimi komi fram í auknum ósjálfráðum hreyfingum auk þess að ýta undir hvatvísi og dómgreindarskort. Sem sagt maður verður kú kú í hausnum! Ef þú ert á öðru máli og hefur betri skýringi þá skjóttu.
Nóg í bili, over and out, Sonja the single one
|
posted by Kristin @
10:40 e.h.
|
19.2.04  |
Best að fylgja fordæmi sambýlings míns og blogga smá. Er þessa stundina í vinnunni að berjast við andlegan dauða því allt mitt vit hefur farið í skýrsluskrif þennan morguninn. Mér er tjáð hér á staðnum að þetta sé refsingin fyrir því að hætta í vinnunni. Ég læt þetta samt ekki buga mig og reyni að þrauka út mánuðinn. Þá tekur nú við betri tíð með blóm í haga á nýjum og spennandi vinnustað.
Annars er nú ekkert merkilegt að gerast, stelpurnar ætla að yfirgefa mig um helgina og fara norður, ég veit ekki hvernig ég höndla það, ég kann ekkert að vera ein heima lengur. Er annars að fara á Chicago í kvöld með vinnunni, 80 manns ætla að storma héðan og svo á ball með Hljómum á Kringlukránni. Ég ætla nú bara að sjá til hvort ég læt sjá mig þar, vil helst ekki að það fréttist af mér á slíkri skemmtun, mannorðið sko. En það er best að hætta þessu, það les þetta jú enginn nema sambýlingarnir og ég held að þær viti þetta allt. En ef e-r annar hrökklast hingað inn, endilega skrifa e-ð fallegt og skemmtilegt, nú eða e-n klúran ósóma, sama er mér, látið bara í ykkur heyrast, Venlige hilsen Bergþóra
|
posted by Kristin @
1:49 e.h.
|
13.2.04  |
Jæja !!! Its a bát fokking taem að einhver fari að blogga hérna :)
smeee smmee, hvern er ég að reyna að blekkja...????? Eina fólkið sem mun skoða þetta eru kellingarnar sem ég er að leigja með.......hummmm.... sorglegt. Er í alvörunni að pæla í Félagi einhleypra, sem eru með fundi á hverju fimmtudagskvöldi, því hvar eru einhleypu karlanir hérna í borginni sem reykja ekki sjálfvafðar rettur ??? Auglýsi hér með eftir þeim...ppplllíííííss gefið ykkur fram NÚNA ....takk. Auk þess er nú bara hollt að fara út úr húsi svona eitt kvöld í viku þ.e.a.s edrú.
Annars er ég að komast að því að líf einhleypra er hreint ekki eins auðvelt og ég hélt í minni barnslegu trú. Það eru fullt af reglum í samskiptum kynjanna sem þarf að læra og virða t.d. um hvenær senda má sms, klukkan hvað og hversu mörg þau mega vera. Einnig þarf að læra að fá ekki anginu ef manni er boðið eitthvað óvænt t.d. í bío...heheheh......, hvernig hafna eigi manneskju án þess að særa hana og síðast en ekki síst að "lesa" sms-in þ.e. að finna hina sönnu meiningu þeirra
En að lokum þá hreinlega verð ég að vera sammála Bubba, LÍFIÐ ER DÁSAMLEGT :)
|
posted by Kristin @
10:51 e.h.
|
4.2.04  |
Hey, hafiði tekið eftir að það er nánast Riminiveðurfar í Nabblanum þessa dagana. Maður fær bara heimþrá.
Gaman að segja frá því að ég á eftir að vinna í 2 daga, þá er ég komin í sumarfrí, jibbý. Verður sá tími notaður vel við massívar línuskautaæfingar, 7 ára nágranna mínum lísta bara ekkert á hvað ég er léleg á skautunum, en ég skal sko sýna honum.....
Ég er ekki að reka mig harkalega á að fólk sé að þiggja þessi endalausu heimboð okkar, finnst ykkur við leiðinlegar eða...?? Nei, þegar ég hugsa mig betur um sé ég að það getur nú bara ekki verið, ástæðan hlýtur að vera önnur. But anyways, allir velkomnir, vonandi fer maður nú að sjá feisið á einhverri ykkar, fara ekki allir norður um Versló, hvernig er það, ha ha ha.
En krúttin mín, best að hætta þessu, það eru hvort sem er ábyggilega engir nema sambýlingar mínir sem lesa þetta, until next time, Bebbuskott
|
posted by Kristin @
9:28 f.h.
|
17.7.03  |
Jæja best að láta Bebbu ekki vera eina um þetta.......veerst að ég hef ekkert að segja.....hummmm
Okei þá bý ég bara til e-ð skemmtilegt slúður, Bebba er ólétt og Kristín er að fara flytja til Íraks til að ná pennavíni sínum til margra ára úr fangelsi þar. Ég vann í síðast víkinga lottói og er því hætt í vinnunni, er að hugsa um að kaupa Perluna og útbúa sætt og notalegt sumarhús úr henni eða hreinlega opna þar klaustur og verða yfirnunna. Hei þetta er bara gaman :D.......æji ég datt úr gír. Well to be continued later over and out Sonja
|
posted by Kristin @
9:57 f.h.
|
10.7.03  |
það er bara sólóblogg hér í gangi, er ég sú eina sem hef ekkert að gera í vinnunni eða hvað???
Nei, það er nú bara rólegt hjá mér núna fram að lokun, já ég fæ óvænt tveggja vikna sumarfrí því pleisinu er hreinlega lokað síðustu vikurnar í júlí og framyfir versló. Það er reyndar mjög fínt að fá þetta frí þó maður hagnist nú ekki á því fjárhagslega. En eftir frí fer allt á fullt og sést sennilega ekki til sólar fyrr en í jólafríinu (ég er strax farin að hlakki til þess, engin prófskita,ekkert stress, bara bakstur og föndur, jei). En við stöllur erum semsagt fluttar á Háteigsveg 52, endilega kíkið í heimsókn og með litlum fyrirvara er hægt að panta gistingu ef fólk hefur áhuga á því, eina skilyrðið er að redda okkur karlmönnum í staðinn :) litli 7 ára nágranni okkar heldur nebblega að við séum lessur af því að við eigum ekki menn. En best að fara að skrifa skýrslu, kíkið endilega í sunnudagskaffi bæbæ bebba
|
posted by Kristin @
1:25 e.h.
|
7.7.03  |
Jæja kellur...
Þá er ég búin að yfirgefa norðlenska grund og haldin á vit ævintýranna í borginni (smá drama). Er búin að rita nokkrum sinnum iðjuþjálfi......en finnst það alltaf jafn fyndið. Hlakka jafn mikið til að flytja á Háteigsveginn eins og Bebba og Kristín ........home sweet home to be.
jæja nóg í bili..over and out, Sonja borgarskvísa
|
posted by Kristin @
2:14 e.h.
|
27.6.03  |
Jæja, þá er maður kominn heim í bogóblíðuna hér, bæði gott og slæmt en er það ekki svoleiðis með allt? Nú maður er bara byrjaður að vinna og svoleiðis, vægast sagt skrítin tilfinning, hvenær skildi þetta fara að venjast? Ég bíð líka í ofvæni eftir að geta flutt á Háteigsveginn og farið að taka á móti gestum þar, sennilega rúmbetra en kitran sem við Stína erum í núna, ekki svo að skilja að hún sé slæm en Stína virðist ekki vera að fíla þennan Öskubuskufíling, hún sefur nebblega í eldhúsinu, blessunin. Já, og ég þjáist líka af slæmu tilfelli af aðskilnaðarkvíða, ég sé ykkur aldrei stelpur og ég sakna ykkar biggtæm. En það stendur nú vonandi allt til bóta, verið bara duglegar að blogga, bæ í bili Bebba :) p.s er ekki búin að læra á þessa broskalla en fer fljótt á námskeið ;)
|
posted by Kristin @
8:48 f.h.
|
24.6.03  |
Komiði öll sæl og blessuð.......Sonja heiti ég og er iðjuþjálfi..................tíhíhí
Takk allar saman fyrir síðast, þetta var skemmtilegt og gaman að sjá fjölskyldur ykkar :)
Sjáumst í síðasta lagi á Háteigsveigi 52 í júlí...chiao
|
posted by Kristin @
10:07 e.h.
|
15.6.03  |
[img]http://www.smilies.org/basesmilies3/f.gif[/img]
|
posted by Kristin @
9:07 e.h.
|
11.6.03  |
Heeeeeheeeeheeee................hver er tölvunörd núna ?????????
The tomato rúlar feitt
over and out
|
posted by Kristin @
4:02 e.h.
|
 |
Heeeeeheeeeheeee................hver er tölvunördið núna ?????????
The tomato rúlar feitt
over and out
|
posted by Kristin @
3:56 e.h.
|
 |
jæja jæja tilraun númer 2...eða 3

|
posted by Kristin @
3:53 e.h.
|
 |
D֖֖֖֖֖֖֖֖....the tomato is very stupit
over and out
|
posted by Kristin @
9:10 e.h.
|
10.6.03  |
DÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖ....the tomato is very stupit
over and out
|
posted by Kristin @
9:09 e.h.
|
 |
Neibbbb...þetta tókst ekki alveg...Valva ég er búin að tína miðanum um hvernig ég á að gera þetta .....dóóóó
hmmm......hvernig var þetta nú aftur???????
http://www.smilies.org/basesmilies3/f.gif
|
posted by Kristin @
9:08 e.h.
|
 |
Velkomin heim þið sem eftir voruð :)
Hér kemur heiðarleg tilraun til að koma brosköllum inn
Here it goes.....
[img]http://www.smilies.org/basesmilies3/with_stupid.gif[/img]
|
posted by Kristin @
9:01 e.h.
|
 |
Hellu öll sömul eða chiao eins og þeir segja á Ítalíu.....tíhíhí. Valva þú ert SNILLINGUR, þetta er ógeðslega flott blogg síða, þú átt heiður skilið fyrir þetta og allavegana kippu af bjór......höhöhöhöh. EN það var ótrúlega gaman á rimini beach, mér fannst þetta frábær ferð og ekki hægt að lýsa henni með orðum. Þetta var frábær blanda af strönd, menningu, verslun og skemmtun :) Kristín og Dagný.....takk fyrir sambúðina mér fannst hún ganga mjög vel...
Ef að sæti þjóninni á Osteria La Logge skyldi lesa þetta þá sakna ég þín og vona að stelpurnar hafi náð góðri mynd af þér svo ég haft hana á náttborðinu í Háteigsveginum (möööhhhhhöööö, maður verður algjör perri af Ítalíu dvöl....im a fast learner)
Ég legg ekki í að setja broskall inna strax........ætla að gefa mér tíma í það síðar...óþarfi að verða tölvunörd strax eins og Valva.
Over and out Scoonja tomato
|
posted by Kristin @
6:55 e.h.
|
9.6.03  |
Ðe Rímínígörls ar kommíng hóm....óver end át...Valva bloggbeib 
|
posted by Kristin @
5:49 e.h.
|
3.6.03  |
Æ hef teiken óver ðí blogg.....múhahahahahahaha
Valva bloggbeib
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
28.5.03  |
Góðir hálsar nær og fjær......
Þegar þetta er ritað er um það bil einn sólahringur þangað til ég verð komið suður yfir heiðar og um tveir sólahringar þangar til ég verð komin til ÍTALÍU............arggggggggggg, híhíhíhíh, ahahahahha, brurrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr........þetta er semsagt bara að gerast :) mig hreinlega skortir orð til að lýsa hrifningu minni þótt ég eigi eigi úr fleiri orðum að moða en meðal Íslendingur og læt því broskall duga og bæti við x2000. Þetta verður því væntanlega í síðasta sinn sem ég rita hér áður en ég fer að svolgra í mig Sangríu og bora tánum ofaní sandinn og horfa á sætu strákana...
Elsku kellur, it is happining, sí jú in Leifur Eiríksson.
Over and out Scoonja
|
posted by Kristin @
3:53 e.h.
|
25.5.03  |
4 dagar í Reykjavíkur ferð!!!!!!!!!!!!!!!!! sem þýðir 5 dagar í RIMININININI....................!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!jibbbbbííííí GLÆSÓ SMÆSÓ hvílík og önnur eins snilldar ferð hefur aldrei verið farin!! stanslaus glaumur og gleði í 2 vikur;)
Jahú.. Heyrðu Dagga ég var líka Nadine treilortrash!! pældíðí, hún sem er svo óþolandi í þáttunum, hóst hóst ekki það að ég horfi á þættina hummm.... en ení veis,
Sonja prófaðu dutyfree.is ýmsar hentugar upplýsingar er þar að finna! ég hef svoldið verið að velta fyrir mér hvort það sé heppilegra að kaupa hreinlega vodkaflösku í fríhöfninni eða hvort þær séu ódýrari úti?? er einhver búin að kynna sér þetta? ef svo er endilega látið mig vita;)
vell vell ég sit hérna og klóra mér í hausnum og anus til skiptis og dettur ekkert í hug að skrifa
Er ekki stemming fyrir júróvisíon um helgina??? kíkið á eurosong.net það er að segja ef þið hafið dauðan tíma... he he en annars ER eitthvað djamm stuð á liðinu um helgina???
kveðja frá Stínu Rímínu
|
posted by Kristin @
2:50 e.h.
|
21.5.03  |
Hæ hæhhææhæhæhæ Það er alltof stutt í þetta, getum við frestað þessu um viku, ég hef alltof mikið að gera:) Er að halda barnaafmæli og standa í endalusum breytingum.......Og þó, ég held ég haldi mig við að fara á tilsettum tíma.....er reyndar frekar döpur þar sem það er aðeins 17 stiga hiti í dag á Rimini. Er búið að kaupa sólarvörn 30, after sun 20 og aloe vera 100.....er þetta ekki eitthvað c.a þannig. En sem sé er ekki byrjuð að pakka og veit ekkert hvað ég á að taka með mér....er að pæla í að taka bara tóma ferðatösku með út....gamla settið var jú að lauma að mér smá styrk....þannig um að gera að EYÐA EYÐA:) O well hef svo sem ekkert að segja .....Hlakka bara rosalega til þegar þetta verður endanlega búið og hægt verður að fara SLAPPA af..."maður verður að slappa af" bein vitnun í Traust og Trygg... sem eru tveir hundar sem Snædís hlustar ansi oft á. Jú jú þegar maður er mamma þá kann maður allt svona og þekkir ekki hljómsveitir eins og Scooter eða eitthvað svoleiðis.....:) Jæja er þetta ekki að verða ágætt hjá mér.....see you on friday... Verð að fara æfa mig í enskunni, ætti bara að flytja kannski fyrirlesturinn á ensku....það væri nú sniðugt...eða hvað? Jæja verð að fara taka töflurnar.....SEE YOU SOON WHEN IM BROWN kveðja Nadine
|
posted by Kristin @
9:20 f.h.
|
 |
S.O.S mig bráðvantar að finna heimasíðu fríhafnarinnar :) ...tíhíhí ...endilega látið vita ef þið hafið rekist á hana..
Scoonja
|
posted by Kristin @
9:11 f.h.
|
 |
Ok ég veit ekki hvað það voru margir dagar þegar við byrjuðum að telja niður í þessa ferð, en það eru margir dagar síðan og það er enn vika í þetta. Ég er bara hætt við að fara, ég nenni ekki að bíða lengur.
Nei, nei bara svona nettur djókari hjá mér. Annars er ég í vandræðum með hvað ég á að taka með mér, ég sé að það er tilboð á steiktum lauk og sinnepi í Nettó, skildi borga sig að kaupa það þar og taka það með sér? Hjálp, somebody shoot me, húmorinn er hér með skriðinn á lægsta plan, best að hætta meðan ég hef enn smá virðingu, sjáumst á Leifstöð, B
|
posted by Kristin @
11:02 e.h.
|
20.5.03  |
p.p.s. ......lalalal...ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég feeerrrr í fríið, lalalalalal.............á Ítalíu er gott að djamma og djúsa diskótekunum á ....HEI.......
Sonja going nuts
|
posted by Kristin @
11:18 f.h.
|
 |
P.s eftir eina viku verðum við í flugvélinni á leið í .................
Sonja
|
posted by Kristin @
11:17 f.h.
|
 |
Ahhhaahaa, vííííhhhhaaaaa, jabadabadu, höööööööööhöhöhöhö............................þið vitið ALLAR hvað ég er að tala um ....spring spring af spenningi.
Whats out Italy because we are coming..............
Cio bella bambino, sotto il sole ala rimini
AAaaaaarggggggg Sonja
|
posted by Kristin @
11:15 f.h.
|
 |
ATH áríðandi tilkynning.........
Dagný er Nadine Cooper Lewis: Thu ert fyrrverandi trailer trash sem giftist upp fyrir thig og ert stanslaust ad reyna ad thoknast kallinum thinum, sem vill samt bara skilja vid thig. Thu ert ekki allt of gafud og reynir ad baeta upp fyrir gafurnar med ymsum radum, en yfirleitt til einskis.
Sonja og Sísý eru Alexandra Spaulding: Þær eru voldugustu konurnar i baenum! Svifast einskis, eru rikar og voldugar og geta fengid hvad sem þær vilja! Þær áttu fallegan son sem do en thegar kom sidar ljos ad þær áttu i raun tviburasyni tha reyndu þær ad gera allt til ad vinna hinn (lifandi)son thinn yfir a sitt band, og ad sjalfsogdu tokst thad ad lokum.
Sandra, Helga Jóna og Milla eru Harley Cooper: Þær eru uppreisnarseggir og villingar! Skyrdar eftir Harley Davidson motorhjli, fylgja engum reglum og gera thad sem thær vilja. Okkar veika hlid eru karlmenn, höfum gifst nokkrum sinnum vegna astar, en thad hefur aldrei gengid upp. Erum hins vegar mjog skotnar i nuverandi kaerasta okkar, sem er lögga alveg eins og við. Vonandi bara ad hann fai aftur tilfinningu i lappirnar eftir sprenginguna...
Vilja fleiri djón uss? Tékkið á www.valvabestaskinn.blogspot.com
|
posted by Kristin @
3:34 e.h.
|
19.5.03  |
Vvvvvvíííííííííí´hhaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa...............er nokkuð þörf á að segja meira !?!............rimini nálgast óðfluga :) og eftir viku verðum við að pakka og koma okkur suður. Varðandi síðustu helgi......allir þeir sem ætla aldrei að drekka aftur lyfti upp hönd...........hehehehehh, DJÓK....:)
Þið sem vissuð það ekki þá er Sandra orðin formlega krimmi......það fannst löggunni allavegana sem stoppaði hana aðfaranótt laugardags...híhíhí.
Aufwiedersehen, und um das klar zu stellen, das Techno lebt !!!!!!!!!!
|
posted by Kristin @
11:16 f.h.
|
 |
Jæja sælar stúlkur....nú fer að styttast í þetta, þvílík stemming. Ég er orðin ekkert smá spennt, hlakka til að fá smá lit í kinnarnar. En sem sé Milla og Sonja sofandi og ég ein mætt....hugsa að það verði lýsandi fyrir Rimini....Þær sofandi og ég úti í sólbaði:) Jabadabadú.......En sem sé bara fyrirlesturinn eftir og svo bara eintóm sæla eftir það. Hlakka til að fara slappa af og einbeita mér af brúnkunni..... Þarf að fara versla mér sólarvörn 30 að minnsta kosti ef ég á ekki að verða brunarúst....Fór í smá sólbað á föstudaginn og brann... það veit ekki á gott... En stefni bara á að maka mig af sólarvörn og þá get ég flatmagað af vild. En hef svo sem ekkert að segja meira svo ég heyri bar aí ykkur síðar ef ekki þá sjáumst við á RIMINI:)
Kveðja Dagný
|
posted by Kristin @
9:50 f.h.
|
 |
Vá, það er svo langt síðan ég hef bloggað að ég veit bara ekki hvort ég kann þetta lengur. Það er greinilegt að nýjabrumið er að mestu rokið af þessu hjá okkur, enginn svo mikið að nenna að tjá sig hér inni lengur, en maður reynir. Ég var að koma úr nettri ítalíuupphitun, eyddi góðum 4 klukkutímum í sundi í steikjandi sól. Núna sit ég hér í rauðum bol og það er bara erfitt að átta sig á því hvar bolurinn endar og ég byrja, slíkur er roðinn á handleggjunum. Eins er eins og það sé e-r sviðalykt í loftinu, veit þó ekki hvort hún er af mér eða.... Ástandið er orðið þannig að ég ræð mér engan vegin fyrir spenningi lengur, loftið er orðið magnþrungið og ég veit bara ekki hvernig ég á að vera. En þetta styttist og styttist og áður en við vitum af verðum við farnar að berja gólfin á þriggja hæða diskótekinu sem Stína fann á netinu, heitir Carnaby diskó og er bara stórt og skemmtilegt. En best að fara heim í jógúrtbað áður en ég fer að hafa hamskipti sökum bruna hérna, skemmtið ykkur vel þið sem eruð að fara á djammið, bæjó Bebba brunarúst
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
16.5.03  |
Hellú leidís...
Langt síðan mar hefur bloggað og sonna, gamanaðessu.... en af mér er bara allt ljómandi að frétta, ég skilaði svo sem eins og einu stykki lokaverkefni á föstudaginn seinasta og hef verið hálf eirðarlaus og furðuleg (meira en vanalega) síðan!!!! Mér finnst bara hreinlega eins og eitthvað vanti;---/ En það hlýtur að líða hjá eins og allt annað og ég get farið að tileinka mér hið góða og eftirsótta letilíf. En í því felst að vera í sömu svettpentsunum í amk viku (án þess að þvo þær) og horfa á óstöðvandi tónlist á skjá einum þar til 5-6 á morgnanna;--) en neits mar það er ennþá eins og eitt stykki tímaritsgrein sem ég á eftir að gera og þá er ég ekki að meina bara mig, Bebba hjálpar til, he he... nei nei
Eb voruð þið búnar að gera ykkur grein fyrir að á þessum degi eftir tvær vikur verðum við á leiðinni í borg tækifæranna og tilbúnar að fara til RIMINI, það er að segja ef það verður ekki búið að aflýsa ferðinni sökum lungnabólgunnar;--) en nei nei við förum samt EKKERT svartsýnisraus hérna..
En ég hef bara andsk.. ekkert að segja. Jú ég fór á myndina How to lose a guy in 10 days í gær og hún er æðisleg, ekta stelpumynd og mér fannst hún mjög fyndin, mæli með henni! en þið Bebba Sonja og Milla hafið kannski ekki smekk fyrir henni þið eruð svo miklar mattsjó vonnabí í myndum kellingar en allavegana... HÚN er skemmtileg og hann er bara sætur... uuummmmm.... hann er bara flottur þegar hann fer úr að ofan jæks..
Gangi ykkur vel með þessa líka skemmtilegu tímaritsgrein og allt og allt sí jú aránd, kv.- Stína Rímína (bakk from ðe ded=)
|
posted by Kristin @
3:57 e.h.
|
12.5.03  |
Hei skvísur
Ég er að lenda í stóru reality shock-i.............vááááá loksins hef ég tíma til þess að fara hugsa um að ég er að fara flytja suður á nýjan stað og byrja í nýrri vinnu .......oh my good....hvað var ég að hugsa..........af hverju skráði ég mig ekki bara í e-ð annað nám hérna á Akureyri !!!!! ........PANIC...........
good bye crew og venlig hilsen Sonja
|
posted by Kristin @
1:20 e.h.
|
 |
Jæja elsku dúllurnar mínar, ekki seinna vænna en að fleiri fari að skrifa á þetta blessaða blog. Því nú fer dögunum fækkandi. Er nú komin á átak dauðans..... veit ekki hversu lengi það verður...en er á meðan er....:) Sem sé ef maðru a´aða láta sjá sig í bikini þá verður maður nú að reyna bretta bumbuna inn og slétta úr appelsínuhúðinni:) En stefnan er samt bara að vera sem fyllst og þá er manni alveg sama hvernig maður lítur út....hí hí. En sem sé hef ekkert að segja, ólýsanlegur feginleiki yfir að vera búin að skrifa en þó ekki alveg búið..... En sem sé hlakka til að flatmaga á ströndinni og gera akkúrat ekki neitt.....ok er bara að bulla og hef ekkert að segja....bara friða samviskuna með því að skrifa nokkrar línur...
Kveðja Dagga sól
|
posted by Kristin @
1:16 e.h.
|
 |